SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *NÝJAR ÍBÚÐIR Í GÖNGUFÆRI VIÐ GOLF, BÆ OG STRÖND* *BEINT FYRIR FRAMAN SERENA GOLFVÖLLINN* *3 OG 4 HERBERGJA ÍBÚÐIR* *GEYMSLA OG STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU* *LYFTUHÚSNÆÐI MEÐ 16 ÍBÚÐUM*Glænýjar, vandaðar og rúmgóðar 3ja og 4ra herb. íbúðir á frábærum stað í lyftuhúsi í Los Alcazares, á Serena golfvellinum. Frábært umhverfi, göngufæri í golf, bæ og strönd, nálægt fallegri strönd og ca. 55 mín. akstur í suður frá Alicante flugvelli og 25 mín akstur á Murcia flugvöllinn. Fjölbreytt úrval af verslunum og veitingastöðum í göngufæri. Margir góðir golfvellir á svæðinu; Las Ramblas, Campoamor, Villamartin, Las Colinas, Lo Romero og ótal fleiri.
Allar upplýsingar gefa
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is sími 0034 615 112 869
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is sími 00354 893 2495 Glæsilegur lokaður sundlaugargarður, sameiginleg svæði og leikvöllur fyrir börn.
Rúmgóðar og vel hannaðar íbúðir. Tvö eða þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi. Eldhús, stofa og borðstofa í opnu rými. Stórar svalir með öllum íbúðunum og auk þess sér þaksvalir með íbúðum á efstu hæð. Sér garður/verönd með íbúðum á jarðhæð.
Sér stæði í bílakjallara fylgir öllum íbúðum ásamt geymslu.
Hægt er að fá íbúðirnar afhentar með húsgögnum gegn auka gjaldi.
Verð frá 269.000 evrum eða 39.000.000 ISK (miðað við gengi 1Evra=145ISK)Hægt er að skoða tilbúna sýningaríbúð á staðnum, fullbúna húsgögnum.
Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar um mitt ár 2028.
Einstakt tækifæri til að eignast góða og vel staðsetta íbúð á fínu verði.
Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka á góðum kjörum.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:
www.spanareignir.isKostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.
Eiginleikar: ný eign, sameiginlegur sundlaugargarður, útsýni, air con, bílastæði, þakverönd, sér garður, strönd, golf,
Svæði: Costa Blanca, Los Alcazares, Serena golf,