Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölu Katlahraun 20, 815 Þorlákshöfn:Glæsilegt og smekklega innréttað 3 herbergja endaraðhús með innbyggðum bílskúr. Samkvæmt fasteignaskrá er eignin samtals 139 fm. þar af er íbúðarhluti 112.8 fm. og bílskúr 26.2 fm. Stórum sólpallur sem snýr í suður, vestur og norður. Húsið er vel staðsett í Þorlákshöfn þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttamiðstöð/sundlaug og verslanir.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAXEignin skiptist í forstofu, í alrými er eldhús og stofu / borðstofu, tvö svefnherbergi, gangur, baðherbergi, þvottahús og bílskúr (geymsluloft).
Nánari lýsing: Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu með góðum fataskáp, parket á gólfi.
Stofa / borðstofa: Í alrými, rúmgóð og björt, útgengt út á stóran suður, vestur og norður sólpall, innfelld ljós í loft, parket á gólfi.
Eldhús: Í alrými með fallegri innréttingu og stórri eyju með miklu skápaplássi, uppþvottavél fylgir með, spanhelluborð á eyju og bakaraofnar sem fyrir eru fylgja ekki með (ný tæki sem fylgja með verða keypt fyrir afhendingu), innfelld ljós í loft, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott með góðum fataskápum, innfelld ljós í loft, parket á gólfi.
Gangur: Innfelld lýsing, parket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Rúmgott herbergi, fataskápur, innfelld ljós í loft, parket á gólfi.
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi, falleg innrétting, walk in sturta, upphengt salerni, útgengi út á sólpall, flísar á gólfi og veggjum
Þvottahús: Með góðri innréttingu, skolvaskur, flísar á gólfi.
Bílskúr: Innbyggður 26.2 fm. bílskúr, lúga upp á geymsluloft, epoxy málning á gólf.
Húsið: Húsið er byggt 2021 og er úr timbri og klætt að utan með fínkornuðu steni. Gólfhiti er í húsinu. Innréttingar eru frá Ikea.
Lóð: Framan við húsið er möl í innkeyrslu og stétt að húsi, á suður, vestur og norðurhlið er ca. 90 fm. sólpallur.
Hér er um að ræða virkilega fallega og vel staðsetta eign. Þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, sundlaug og íþróttahús og náttúruna. Eign sem vert er að skoða.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið holmar@helgafellfasteignasala.is.
Þorlákshöfn:Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.