Mánudagur 9. mars
Fasteignaleitin
Skráð 15. júlí 2025

Brautarholt 8

Atvinnuhúsn.Höfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
829.1 m2
1 Herb.
1 Svefnh.
Verð
299.000.000 kr.
Fermetraverð
360.632 kr./m2
Fasteignamat
173.400.000 kr.
Brunabótamat
226.350.000 kr.
GT
Guðmundur Th. Jónsson
Lögg. fasteiganasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2010539
Landnúmer
103023
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Endurnýjaðar að hluta
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Tvöflalt gler
Þak
Þokkalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Engar Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu gott verslunar-, iðnaðar- og lagerhúsnæði á einni hæð, samtals 829,1 fermetra á stærð, á virkilega góðum stað, miðsvæðis í borginni við Brautarholt 8 í Reykjavík.  

Lýsing á hinum metnu eignarhlutum:
Um er að ræða alla 1. hæð hússins nr. 8 við Brautarholt í Reykjavík sem er verslunar-, skrifstofu- og lagerhúsnæði, samtals að gólffleti 829,1 fermetrar. Hæðin er tveir eignarhlutar, 46,5% af heildareigninni og skiptast eignarhlutarnir þannig skv. Fasteignaskrá HMS:
 
Eignarhluti 201-0538 01 0101 að gólffleti 276,9 fermetrar, merkt Saumastofa skv. Fasteignaskrá.
Eignarhluti 201-0539 01 0102 að gólffleti 552,2 fermetrar, merkt Prentsmiðja skv. Fasteignaskrá.  

 
Nánari lýsing:
Verslunarrými með inngangi frá austri, mikil lofthæð og stórir verslunargluggar bæði til austurs og norðurs, flotað gólf. Snyrting inn af, dúklagt gólf. Lagerrými inn af verslun með þakgluggum, dúkflísar á gólfi. Fremri lager til suðurs með góðum innkeyrsludyrum sem eru um 3,8 metrar á hæð og 2,5 metrar á breidd. Skrifstofa og tæknirými inn af lager. Eldhús með innréttingu og borðaðstöðu, dúkflísar á gólfi. Gangur, breiður og flísalagður. Tvær snyrtingar, vegghengd w.c., innréttingar og flísalögð gólf. Lítil skrifstofa gluggalaus, dúkflísar á gólfi.
Gengið í stigahús af gangi til norðurs. Fundarherbergi, gluggalaust, parket á gólfi. Fjórar skrifstofur, dúklagt gólf á einni, en hinar eru parketlagðar. Opin vinnuaðstaða innst á gangi.
 
Eignarhlutarnir eru í nokkuð góðu ásigkomulagi að innan.
 
Húsið er steinsteypt, byggt árið 1961 og lítur ágætlega út að utan, málað og viðgert árið 2013. Þak á framhúsi er í góðu ásigkomulagi en þak yfir viðbyggingu, port, þarf að endurnýja. Búið er að endurnýja raflagnir, ofna- og ofnalagnir að hluta. Fráveitulagnir/klóaklagnir eru ónýtar og þarf að endurnýja, sbr. fyrirliggjandi skýrslu sem unnin var af Pípulagnaþjónustu Reykjavíkur í febrúar 2025.
 
Lóðin er 1.204,0 fermetrar að stærð, leigulóð frá Reykjavíkurborg, frágengin og með malbikuðum bílastæðum. Lóðin er sameiginleg með öðrum eignarhlutum hússins.  
 
Fasteignin er vel staðsett á horni Brautarholts og Stúfholts.
 
Fastanúmer eignarhluta: F201-0538 01 0101 og F201-0539 01 0102.  Landnr. L103023.

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (23)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Faxafen 14
Til leigu
Skoða eignina Faxafen 14
Faxafen 14
108 Reykjavík
758.1 m2
Atvinnuhúsn.
Fasteignamat 120.750.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Dugguvogur 52
Skoða eignina Dugguvogur 52
Dugguvogur 52
104 Reykjavík
604.7 m2
Atvinnuhúsn.
3
405 þ.kr./m2
245.000.000 kr.
Skoða eignina Koparslétta 10
Skoða eignina Koparslétta 10
Koparslétta 10
162 Reykjavík
59.1 m2
Atvinnuhúsn.
1
574 þ.kr./m2
33.900.000 kr.
Skoða eignina Mánatún 3 (305)
Friðjón_vefur (5).jpg
Mánatún 3 (305)
105 Reykjavík
127.1 m2
Fjölbýlishús
413
865 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin