Merkurhraun 9, glæsilegt, nýlegt 150 fm sumarhús með stórkostlega vel hannaðri 4.000 fm eignarlóð í landi Skálmholts í Flóahreppi.
Jón Smári Einarsson lgf. s. 860640 og Fasteignaland kynna eignina Merkurhraun 9, í landi Skálmholts í Flóahreppi, 803 Selfoss.
Í þessu húsi er steypt plata með hita í gólfi, lokuðu hitakerfi, forhitari fyrir neysluvatn og loftræstikerfi, útsog í votrýmum og innblástur í öðrum rýmum. Hiti er í hellulagðri gangstétt út að bílaplani.
Lýsing:
Rúmgott anddyri með flísum á gólfi með fatahengi og innfelldum ljósum í lofti. Frá andyri er gengið inn í sameiginlegt rými stofu og eldhúss. Stofan er opin og rúmgóð með fallegri frístandandi kamínu sem gefur notarlega stemmingu. Falleg innrétting er í eldhúsi með span-helluboðri. Í innréttingunni er tveir ísskápar með frystiskápum ásamt bökunar- og örbylgjuofni. Eikarparket á gólfi. Útgengt er frá alrými út á vestur sólpall.
Svefnherbergin eru fimm, þrjú mjög rúmgóð og skemmtilega hönnuð á neðri hæð með gólfsíðum gluggum og tvö minni svefnherbergi á efri hæð með flóttaleið og neyðarstigum, þar eru grifjuofnar. Eikarparket er á gólfi allra svefnherbergja. Tvö baðherbergi, bæði með upphengdu salerni, vaski í innréttingu, handklæðaofni og "walk-inn" sturtu. Í stærra baðherberginu er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar eru á gólfum og veggjum upp í loft. Gæsileg sauna með flísum á gólfi, fallegri kósý lýsingu og stórum glugga með skyggðu gleri. Af gangi sem er flisalagður er gengið út á lokaðan sólpall með hárri skjólgirðingu. Þar er heitur pottur með wifi hitastýringu og góð aðstaða til grilla og til sólbaða.
Parketlagður stigi er á milli hæða og eru þar skápar sem haganlega er fyrirkomið undir stiganum.
Geymsluskúr um 15 fm er á lóðinni. Tvö gróðurhús um 8 fm hvort þar við viðhliðina.
Vel hannað, hellulagt svæði með skjólgirðingu kring um fallegt eldstæði er á lóðinni.
Bílastæði er fyrir 4-5 bíla.Stór 4.000 lítra rotþró.
Árgjald sumarhúsafélags er um kr. 35.000. Í ár er sérstakt framkvæmdagjald kr. 30.000 og söfunun fyrir rafmagnshliði kr. 75.000. Möguleiki er að fá innbú keypt með eigninni utan persónulegra muna.
Eignin Merkurhraun 9 er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign 234-7045, merkt 01-01, birt stærð 149.7 fm.
Staðsetning og nærumhverfi:
Merkurhraun 9 er í landi Skálmholts í Flóahreppi. Svæðið er vel staðsett og þaðan er stutt í fjölbreytta þjónustu á Selfossi, Flúðum og í Laugarási. Umhverfið einkennist af fallegu hraunlandslagi og lyngmóa og mikilli náttúrufegurð. Staðsetningin hentar því vel þeim sem vilja njóta friðsældar og náttúru án þess að vera langt frá daglegri þjónustu.
Þetta er virkilega falleg og vel umgengin eign á skemmtilegum stað stutt frá Selfossi.
Hér er um að ræða einstakt tækifæri til að eignast stórglæsilegt hús og á sérlega fallegri eignarlóð.
SJÓN ER SÖGU RÍKARI - BÓKIÐ SKOÐUN í síma 8606400.
Nánari upplýsingar veitir:
Jón Smári Einarsson
Löggiltur fasteignasali / MPM, viðskiptafræðingur.
jonsmari@fasteignaland.is
860-6400
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignaland fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup á íbúðarhúsnæði m.v. amk. 50% hlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900 .
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.