Mánudagur 28. apríl
Fasteignaleitin
Skráð 25. apríl 2025
Deila eign
Deila

Kolagata 1

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
118.4 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
149.000.000 kr.
Fermetraverð
1.258.446 kr./m2
Fasteignamat
107.850.000 kr.
Brunabótamat
84.600.000 kr.
GT
Guðmundur Th. Jónsson
Lögg. fasteiganasali
Byggt 2018
Þvottahús
Lyfta
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2363616
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
4
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
5
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
Upphaflegar
Frárennslislagnir
Upphaflegar
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Upphaflegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Austur svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignamarkaðurinn ehf. kynnir til sölu glæsilega 118,4 fermetra 3ja herbergja íbúð á 4. hæð með útsýni út á Reykjavíkurhöfn og að Arnarhóli. Íbúðin stendur við Kolagötu 1 á Hafnartorgi í nýlegu húsi byggðu af ÞG Verk í hjarta miðbæjarins.  

Íbúðin er frábærlega staðsett í nálægð við alla menningu og verslun og þjónustu sem Miðborgin hefur upp á að bjóða. Allar innréttingar og tæki eru sérvaldar af innanhúsarkitekt til að mynda eina stílhreina heild og eru öll tæki og tæknibúnaður fyrsta flokks. Allt ytra efnisval bygginganna er í hæsta gæðaflokki sem og allur lóðarfrágangur. 

Íbúðin er hið glæsilegasta eins og fyrr greinir með fallegum innréttingum frá Noblessa og borðplötum úr vönduðu Meganite Carrara efni. Öll eldhústæki eru af vandaðri gerð frá Siemens og vínkæli í eldhúseyju. Aukin lofthæð og allar innihurðar extra háar og framleiddar af HBH smíðaverkstæði. Myndavéladyrasími og blöndunartæki af vönduðustu gerð frá Vola (Tengi). Rafkerfi útihurðir eru raflæstar og tengdar heildstæðu aðgangsstýrikerfi. E-Net ljósastýrikerfi frá GIRA er í öllum íbúðum sem býður upp á notkun smáforrits (app) í snjalltækjum til að stýra ljósum. Hita og loftræstikerfi pípulagnakerfi hússins (innan íbúða) er leitt í gegnum lóðrétta lagnastokka. Ofnalagnir eru innsteyptar rör-í-rör og ofnar eru með vönduðum ofnlokum frá Danfoss

Íbúðin skiptist í forstofu, þvottaherbergi, tvö baðherbergi, bæði með gólfhitalögnum, stofu með svölum til austurs, eldhús, barnaherbergi og hjónaherbergi og eigninni fylgir sérgeymsla í kjallara hússins.


Lýsing eignar:
Forstofa, parketlögð og með fataskápum.
Þvottaherbergi, flísalagt og með góðum innréttingum með stæðum fyrir vélar í vinnuhæð.
Baðherbergi I, er innaf forstofu/holi, flísalagt gólf og veggir, gólfhiti, innrétting með vandaðri borðplötu með innfelldum vaski og Vola tækjum, speglaskápar með lýsingu, vegghengt wc og flísalögð sturta með sturtugleri og innbyggðum Vola tækjum í vegg.
Hjónaherbergi, stórt, parketlagt og með fataskápum á heilum vegg. 
Baðherbergi II, stórt, flísalagt gólf og veggir, gólfhiti, frístandandi baðkar með Vola blöndunartækjum í vegg og sturtuaðstöðu. Innrétting með vandaðri borðplötu með innfelldum vaski og Vola tækjum, vegghengt wc og speglaskápar með lýsingu í.
Eldhús, opið við stofu, parketlagt, bjart og rúmgott. Fallegar og vandaðar innréttingar með Meganite Carrara á borði og á milli skápa, innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur með frysti. Stór eyja með innbyggðum vínkæli, spanhelluborði og háfi í borði. Frá eldhúsi er virkilega fallegt útsýni yfir höfnina og að Arnarhóli og nýtur kvöldsólar og morgunsólar í eldhúsi. 
Stofa, parketlögð, björt og rúmgóð með gluggum í tvær áttir og útgengi á svalir til austurs með glerhandriði. Frá stofu er virkilega fallegt útsýni yfir höfnina og að Arnarhóli og nýtur kvöldsólar og morgunsólar í stofu. 
Herbergi II, parketlagt og rúmgott og gert ráð fyrir fataskápum.  Léttur veggur skilur að herbergi og stofu og því hægt að stækka stofuna sem þessu rými nemur.

Í kjallara hússins eru:
Sérgeymsla, sem er 7,4 fermetrar að stærð.
Sameiginleg hjólageymsla.

Einstakt hús í hjarta borgarinnar.
Hafnartorg skartar 70 hágæða íbúðum, allt frá stílhreinum tveggja herbergja íbúðum upp í stórglæsilegar þakíbúðir með einstöku útsýni. Allar innréttingar og tæki eru sérvaldar af innanhúsarkitekt til að mynda eina stílhreina heild og eru öll tæki og tæknibúnaður fyrsta flokks. Allt ytra efnisval bygginganna er í hæsta gæðaflokki sem og allur lóðarfrágangur. Undir húsunum er stærsti bílakjallari landsins sem nær allt til Hörpunnar. Íbúðirnar eru frábærlega staðsettar í nálægð við menningu, sögu, verslun og þjónustu. Lúxus fasteignir í hjarta Reykjavíkur með iðandi mannlíf allt um kring.

Bílakjallari.  sem er opinn allan sólarhringinn alla daga ársins. Mikið erlagt upp úr frágangi hvað varðar lýsingu, merkingar og að auki verður fullkomið leiðsagnarkerfi til að auðvelda að finna stæði eða fá leiðbeiningar um hvar bílar eru staðsettir og hvernig eigi að komast að og frá þeim stað sem eigandi bíls er staddur í byggingunum. Íbúum stendur til boða að leigja bílstæðakort skv. samkomulagi á milli íbúa í hverfinu og eiganda bílageymslunnar.

Hönnuðir.
Arkitektar hússins eru PKdM arkitektar. Stofan sem var stofnuð af Pálmari Kristmundssyni arkitekt hefur unnið til fjölda verðlauna hér heima og erlendis fyrir framúrskarandi hönnun.
Guðbjörg Magnúsdóttir, sem er meðal þekktustu innanhússhönnuða landsins, hannaði og sá um efnisval inn í allar íbúðir á 2-5 hæð húsanna.

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
14/07/202172.150.000 kr.95.000.000 kr.118.4 m2802.364 kr.
26/05/202172.150.000 kr.95.000.000 kr.118.4 m2802.364 kr.Nei
09/07/201972.500.000 kr.80.000.000 kr.119 m2672.268 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vesturvin V2 íb 305
Bílastæði
Vesturvin V2 íb 305
101 Reykjavík
120.7 m2
Fjölbýlishús
312
1123 þ.kr./m2
135.500.000 kr.
Skoða eignina Vesturvin V2 íb 405
Bílastæði
Vesturvin V2 íb 405
101 Reykjavík
120.7 m2
Fjölbýlishús
312
1172 þ.kr./m2
141.500.000 kr.
Skoða eignina Vesturvin V1 íb 304
Bílastæði
Vesturvin V1 íb 304
101 Reykjavík
135.3 m2
Fjölbýlishús
413
1057 þ.kr./m2
143.000.000 kr.
Skoða eignina Vesturvin V1 íb 503
Bílastæði
Vesturvin V1 íb 503
101 Reykjavík
135.7 m2
Fjölbýlishús
413
1162 þ.kr./m2
157.700.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin