** Opið hús mánudaginn 10. nóvember frá kl. 16:30 til 17:00 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg 95,5 m2 3ja herbergja útsýnisíbúð á 2. hæð ásamt bílastæði í lokaðri bílageymslu í nýlegu fjölbýlishúsi (byggt 2023). Eignin er skráð 95,5 m2 en þar af íbúð 83,2 m2 og geymsla 12,3 m2. Eignin skiptist í forstofugang, 2 svefnherbergi, baðherbergi, stofu og eldhús. Sérgeymsla og bílastæði í kjallara. Svalir með glæsilegu útsýni til sjávar. Fallega innréttingar, steinn á borðum í eldhúsi og á baðherbergi. Gólfhiti og aukin lofthæð. Stutt í alla helstu þjónustu, hvort sem það er í verslun, skóla, leikskóla eða íþróttamannvirki. Búið er að setja upp hleðsustöðvakerfi frá ON í bílakjallara.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.Nánari lýsing:Forstofugangur er rúmgóður með innbyggðum fataskáp og parketi á gólfi.
Eldhús opið inn í stofu með vandaðri innréttingu frá VOKE sem nær til lofts. Í innréttingu er ofn, span hellurborð, vifta, innbyggður ísskápur, innbyggð uppþvottavél og niðurfelldur vaskur. Quartz steinn frá Technistone á borði.
Stofa er með gólfsíðum gluggum og parketi á gólfi. Úr stofu er útgengt á rúmgóðar svalir íbúðar með stórbrotnu útsýni til sjávar og fjalla.
Baðherbergi flísalagt og með vandaðri innréttingu. Á baði er vegghengt salerni, 'walk in' sturta og handklæðaofn. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara.
Hjónaherbergi er rúmgott með gólfsíðum glugga, parketi á gólfi og góðum fataskápum sem ná til lofts.
Svefnherbergi nr. 2 er rúmgott með gólfsíðum glugga, parketi á gólfi og fataskáp sem nær til lofts
Sérgeymsla er í kjallara hússins. Er skráð 12,3 m2
Íbúðinni fylgir hlutdeild að sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Fyrirhugað fasteignamat fyrir 2026 er kr. 77.350.000
Verð kr. 87.900.000,-Annað: Húsin eru hönnuð af ARKÞING Arkitektum. Húsið er klætt að utan með álklæðningu. Gluggarnir eru ál-tré gluggar frá Byko sem hafa það einkenni að vera með hátt einangrunargildi fyrir hita og hljóði.Sérsmíðaðar innréttingar frá VOKE-III, blöndunartæki frá Grohe og hreinlætistæki frá Duravit. Quartz steinn frá Technistone er á eldhúsum og böðum. Parket og flísar er frá Ebson og eldhústæki frá AEG. Hitalagnir í helstu gönguleiðum lóðar. Djúpgámar á lóð fyrir flokkað rusl.
Staðsetning: Við Eiðsvík í Gufunesi er að rísa spennandi íbúðabyggð í gömlu iðnaðarhverfi sem nú hýsir kvikmyndaver og fyrirtæki í skapandi greinum. Landslagið er einstakt, vogskornir klettar, strendur með svörtum og gylltum sandi, fuglalíf og útsýni yfir Geldinganes, Viðey, Esju og miðborgina. Engar götur skilja byggðina frá náttúrunni og einungis hjóla- og göngustígar liggja að hafi. Vatnastrætó, ylströnd, göngubrú út í Viðey og góðir göngu- og hjólastígar er meðal þess sem mun einkenna þetta skemmtilega hverfi. Það er einstakt að eiga kost á slíkri náttúruperlu í miðri höfuðborginni. Það er stutt í alla þjónustu, hvort sem það er í verslun, skóla, leikskóla eða íþróttamannvirki. Í Spönginni má m.a. finna ýmsar matvöruverslanir, vínbúð, veitingastaði, bókasafn, apótek, heilsugæslu, menningarmiðstöð og tónlistarskóla. Stutt er í Vættaskóla sem er grunnskóli og Borgarholtsskóla sem er framhaldsskóli. Þá eru fjölmargir leikskólar í nágrenninu auk þess sem golfvöllur er skammt undan.