STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Um er að ræða bjarta og opna 101,6 fm 3ja herbergja íbúð á þriðju hæð í snyrtilegu álklæddu fjölbýli með lyftu og stæði í bílageymslu. Stutt gönguferð í leik- og grunnskóla ásamt leiksvæðum fyrir börn. Einnig er stutt í skemmtilegar göngu- og hjólaleiðir í næsta nágrenni við Heiðmörk og Urriðavatn. Myndavélarsími er í íbúð og sameignin er snyrtileg.
Íbúðin er 87,2 fm (merkt 01-0303) og geymslan er 14,4 fm (merkt 01-0109) samtals er eignin skráð 101,6 fm skv. skráningu Þjóðskrá Íslands.
*Smelltu hér til að skoða myndband um eignina*Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: eggert@stofnfasteignasala.isForstofa er með harðparketi á gólfi og skápum.
Stofa er með harðparketi á gólfi og þaðan er útgengt á djúpar suðursvalir.
Eldhús er með harðparketi á gólfi, hvít innrétting.
Svefnherbergin eru tvö og eru með harðparketi á gólfi og skápum.
Baðherbergi er með flísum á gólfi ásamt hluta veggja, handklæðaofn, upphengt wc, opin sturta, skápur og skúffur undir vask.
Þvottahús á baðherbergi er tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er rúmgóð í sameign með máluðu gólfi og með góðum gluggum.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Stæði í bílageymslu í lokuðum upphituðum bílakjallara þar sem búið er að leggja grunnkerfi fyrir hleðslustöðvar.