Valhöll fasteignasala og Sölvi Sævarsson kynna í einkasölu: Glæsilegt, vandað og vel skipulagt raðhús á þremum hæðum á skjólsælum stað í Fossvogsdal. Eignin er búin vönduðum tækjum og fallegum flísum í bland við gegnheilt eikarparket en gólfhiti er á miðhæð og í kjallara. Innanhússhönnun var í höndum Rutar Káradóttur og er allar innréttingar, skápar og innihurðir sérsmíðaðar af Sérverk. Eignin er 321 fm skv. opinberri skráningu en því til viðbótar er óskráð rými undir bílskúr þar sem útbúin hefur verið frábær líkamsræktaraðstaða/tómstundarými. Húsið er vel skipulagt og hentar afar vel fyrir stóra fjölskyldu.
Eignin er í heild skráð 321,2 m² skv. Þjóðskrá Íslands, þar af er bílskúr 41,5 m² og er 41,5 m² óskráð rými undir bílskúr. Alls er þá eignin 362,7 m² með rými undir bílskúr.
Fasteignamat 2026 er 220.800.000 kr.- Byggingarár er 2014.
Eignin skiptist í anddyri, eldhús, stofu, borðstofu, tvö sjónvarpshol, fjögur stór svefnherbergi, tvö baðherbergi, gestasnyrtingu, þvottahús, bílskúr og líkamsræktaraðstöðu í óskráðu rými undir bílskúr.
Allar nánari uppl. veitir Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali í s. 618-0064 eða solvi@valholl.is
Nánari lýsing:
Miðhæð: Komið er inn í rúmgóða forstofu með miklu skápaplássi. Við forstofu er gestasnyrting með upphengdu salerni og handlaug. Innangengt er úr forstofu inn í bílskúr.
Alrými hæðarinnar er opið og bjart með útgengi um rennihurð út í garð. Eldhúsið er veglegt með sérsmíðaðri, hvítri innrétting á móti dökkbæsaðri eik. Steinn er á borðum, undirlímdur vaskur og vönduð tæki. Stofan og borðstofan eru samliggjandi og rúmgóðar með stórum gluggum í suður út á verönd. Fallegar flísar eru á gólfum miðhæðar með gólfhita. Sólríkt útisvæðið er hið glæsilegasta með miklum harðviðarpöllum, skjólveggjum og heitum potti. Frá alrými er veglegur stálstigi milli hæða. Stigahol er mjög bjart með fallegum, hringlaga þakglugga.
Efri hæð: Komið er inn í rúmgott sjónvarpshol með útgengi á rúmgóðar suðursvalir. Á hæðinni eru þrjú mjög rúmgóð og björt svefnherbergi með góðu skápaplássi. Stórt baðherbergi er á hæðinni með sérsmíðaðri innréttingu,steinn á borðum, undirlímdur vaski og "walk in" sturta með innbyggðum blöndunartækjum.
Neðri hæð: Stór hjónasvíta er á neðstu hæð með útgegni út á verönd. Stórt fataherbergi og baðherbergi með sérsmíðaðri innréttingu, upphengdu salerni og veglegri sturtu með innbyggðum blöndunartækjum. Rúmgott sjónvarpshol er einnig á hæðinni. Stórt þvottahús með innréttingu með góðu geymsluplássi. Óskráð rými er undir bílskúr (rúmir 40 fm) þar sem útbúin hefur verið frábær líkamsræktaraðstaða og tómstundarými.
Bílskúr er skráður 41,5 fm. Innangengt er í bílskúr frá forstofu. Rafknúin bílskúrshurð auk inngönguhurðar að framan. Einnig er á bakhlið bílskúrs útgönguhurð og gluggar sem vísa út í bakgarðinn. Lóðin er fullfrágengin með snjóbræðslukerfi fyrir framan hús og veglegum pöllum og skjólveggjum á baklóð.
Nánari upplýsingar veitir:
Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali. í síma 618-0064 eða solvi@valholl.is
– eða skrifstofa / s.588-4477 valholl@valholl.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 69.900 kr.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0.3% af endanlegu brunabótamati.