NÁNARI UPPLÝSINGAR FÆRÐU HJÁ GUÐNÝJU ÞORSTEINS Í SÍMA 7715211 EÐA GUDNYTH@REMAX.IS
SMELLTU HÉR OG SKOÐAÐU EIGNINA Í 3D UMHVERFI (ekki er þörf á frekari forriti)
RE/MAX og GUÐNÝ ÞORSTEINS Löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Fjögurra herbergja 133,8m
2 íbúð á jarðhæð með verönd til suðurs auk sér
bílastæðis í lokaðri og upphitaðri bílageymslu í fjölbýlishúsi með lyftu á eftirsóttum stað í Garðabæ. Góð aðkoma er að húsinu, rafmagnsopnun er á hurðum í sameign, gott aðgengi er að íbúðinni.
SMELLTU HÉR OG FÁÐU SÖLUYFIRLIT SAMSTUNDISEignin samanstendur af: Forstofu, 3 svefnherbergjum, eldhúsi, stofu, baðherbergi, þvottahúsi, ásamt útgengi á verönd sem snýr í suður. Sameign er sérlega snyrtileg og rúmgóð. Gott aðgengi er fyrir fatlaða. Bílastæði er í upphituðu bílastæðahúsi.
Nánari lýsing:Forstofa: Komið er inn í forstofu með skápum sem ná upp í loft. Parket á gólfi.
Eldhús: Er með góðu skápaplássi. Eyja með helluborði ásamt háfi ásamt tengi fyrir uppþvottavél. Parket á gólfi.
Stofa: Er í samliggjandi flæði rými með eldhúsinu með útgengi út á verönd. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Hjónaherbergið er rúmgott með fjórföldum fataskápum sem ná upp í loft. Parket á gólfi.
Svefnherbergi: Gott herbergi með tvöföldum fataskápum sem ná upp í loft. Parket á gólfi.
Svefnherbergi: Er virkilega rúmgott með stórum gluggum. Á upphaflegum teikningum var þetta rými stofa og er þar af leiðandi með léttum vegg sem auðvelt er að taka niður (veggur er ofan á parketi). Parket á gólfi.
Baðherbergi: Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, innrétting er undir vaski ásamt skáp við hlið spegils á vegg, sturtuklefi ásamt baðkari og upphengdu salerni.
Þvottahús: Er með góðri innréttingu ásamt þvottasnúrum. Flísar á gólfi.
Verönd: Snýr í suður og er 11,9m
2 að stærð, þegar er leyfi til að loka þessu rými með gleri eða gera hálf opinn pall með gleri (teikningar geta fylgt með).
Bílastæði: Er í upphituðu bílastæðahúsi. Búið er að leggja rafmagn inn í bílakjallara en hver og einn þarf að láta leggja rafmagn fyrir sína hleðslustöð. Sameiginleg bílaþvottaaðstaða er í bílastæðahúsinu.
Hjóla- og vagnageymsla: Er í sérlega snyrtilegri sameign.
Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Guðný Þorsteins löggiltur fasteigna- og skipasali s: 771-5211 eða á netfangið gudnyth@remax.is.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Re/Max því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, 69.900 kr. m.vsk.