RE/MAX og Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Einstaklega björt og falleg fjögurra herbergja 111,1 fm. endaíbúð á 1. hæð ásamt útleiguherbergi í kjallara við Barónsstíg 65, 101 Reykjavík. Gengið er inn í húsið bakatil þar sem stór og skjólgóður garður til suðurs býður uppá notalegt útisvæði fyrir íbúa. Íbúðin er með glugga á þrjá vegu, aukinni lofthæð og nýtur því góðrar birtu sem skapar hlýlegt og rúmgott yfirbragð.Falleg og vel skipulögð eign á vinsælum stað ásamt útleiguherbergi með mikla möguleika. Fjölbreytt þjónusta í göngufæri, verslanir, kaffi- og veitingahús, Sundhöll Reykjavíkur, leik- og grunnskólar ásamt öllu því sem miðborgin hefur uppá að bjóða. Húsið teiknaði Jón Víðis arkitekt í fúnkis-stíl árið 1931. Íbúðin er laus við kaupsamning eða eftir samkomulagi.KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU ÍBÚÐINA Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR
KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU AUKAHERBERGIÐ Í SAMEIGN MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR
FÁÐU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉRNánari upplýsingar veitir Guðrún Lilja í síma 867-1231 eða með tölvupósti gudrunlilja@remax.isNánari lýsing: Íbúðin er skráð 105,3 fm. að stærð. Íbúð telur í tvær stofur og tvö svefnherbergi innan íbúðar en önnur stofan er nýtt sem þriðja svefnherbergið í dag. Íbúðin er í fallegum og sjarmerandi gamaldags stíl.Forstofa íbúðar er parketlögð og gengið er inn hol sem tengir saman helstu vistarverur íbúðar. Lítil
geymsla er staðsett í forstofunni.
Eldhús er einstaklega bjart og rúmgott með gluggum á tvo vegu. Fallegar hvítar innréttingar með viðarborðplötu og góðu skápaplássi. Helluborð, bökunarofn, gufugleypir og innbyggð uppþvottavél. Inn af eldhúsi er einnig góð
búrgeymsla. Stofa er í björtu og opnu alrými, parket á gólfum. Falleg frönsk rennihurð er milli stofu og borðstofu, sem er nýtt í dag sem hjónaherbergi.
Hjónaherbergi er parketlagt með fataskápum.
Barnaherbergin eru tvö, parket á gólfum.
Baðherbergi er í fallegum gamaldags stíl með viðar vaskinnréttingu og frístandandi baðkari. Flotað gólf og flísalagðir veggir að hluta.
Nýlegt parket á svefnherbergjum og alrými.Íbúðaherbergi í kjallara er um 8,4 fm. að stærð. Hefur verið nýtt sem útleigueining og því með ýmsa möguleika.
Herbergið er með aðgang að
sameiginlegu salerni í sameign.
Sérgeymsla íbúðar er um 8,3 fm. að stærð, einnig staðsett í sameign.
Þvottahús og þurrkherbergi er sameiginlegt, staðsett í sameign.
Geymsluskúr er á lóð. Þar eru þrjár sérgeymslur fyrir húsið, m.a. geymsla sem tilheyrir íbúðinni (köld) um 8,3 fm. að stærð. Nýlegt þakjárn er á bílskúr.
Garður er einstaklega fallegur og gróinn með stórum trjám.
Framkvæmdir og viðhald síðustu ára:Þak hefur verið yfirfarið og málað (2024). Þakjárn á geymsluskúr var einnig endurnýjað.
Rafmagn íbúðar var endurnýjað að hluta og rafmagnstafla endurnýjuð (2020). Nýtt parket.
Skólp og frárennsli var yfirfarið og fóðrað (2015).
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.