Halldóra Kristín Ágústsdóttir löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur sími 8611105- dora@eyjaeignir.is og Eyjaeignir fasteignasala kynna í einkasölu: Bárustíg 2 ( 2. -4. hæð) sem er 592.8 fm2 eign með mikla möguleika á besta stað í hjarta bæjarins. 17 stúdíóíbúðir/herbergi eru í eigninni sem var byggð árið 1924. Veitingasalur/setustofa var byggður árið 2012 og er 67.9 fm2 þaðan er útgengt útá stórar svalir. Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð, einhverjir gluggar endurnýjaðir, allir gluggar á efstu hæð nýlegir. Nýlega var skipt um teppi á sameign og allt málað. Rafrænt lásakerfi á öllum herbergjum. Búið er að endurnýja alla sturtuklefa og hluta af innréttingum. Brunastigi er við húsið sunnanvert. Frábært fjárfestingartækifæri með mikla möguleika! Innbú getur fylgt samkvæmt samkomulagi.
BÓKIÐ SKOÐUN á netfangið dora@eyjaeignir.is eða í síma 8611105Nánari lýsing:
1. hæð: inngangur með flísum á gólfi, teppalagður stigi upp á 2. aðra hæð
2. hæð: 8 íbúðir/ herbergi, öll með sér baðherbergi og 3 þeirra með eldhúsi. þvottahús er á 2. hæð.
3. hæð: 7 íbúðir/herbergi öll með baðherbergi og 3 með eldhúsi.
4. hæð: 2 íbúðir/herbergi með baðherbergi og eldhúsi. á 4. hæð eru svalir með útsýni yfir bæinn.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Eyjaeignir fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.