Miðvikudagur 10. júní
Fasteignaleitin
Skráð 10. júní 2026

Hulduholt 2 - 105

FjölbýlishúsNorðurland/Akureyri-603
131 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
110.500.000 kr.
Fermetraverð
843.511 kr./m2
Fasteignamat
74.700.000 kr.
Brunabótamat
102.400.000 kr.
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2527503
Landnúmer
232107
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
St+timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
05
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Til vesturs
Upphitun
Hitaveita/gólfhiti
Inngangur
Sameiginlegur
Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Hulduholt 2 - 105

Glæsileg og vönduð þriggja herbergja íbúð á 2. hæð í nýju fjölbýli í Holtahverfi. Eignin er samtals 130,1 fm. þar af geymsla í sameignarrými 10,7 fm.. Bílastæði í bílakjallara fylgir eigninni. 

**Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning**


Eignin skiptist í anddyri, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi (annað inn af hjónaherbergi) og þvottahús.

Í anddyri er vinylparket á gólfi og fataskápar á gang.
Í stofu er vinylparket á gólfi, hljóðdúkur í lofti, innfelld lýsing og stórir gluggar til tveggja átta. Þaðan er útgengt um rennihurð út á svalir sem snúa til suðvesturs
Í eldhúsi eru innréttingar sérsmíðaðar úr harðspón, ljós eik. Bekkplötur eru úr stein. Í eldhúsinnréttingu er svart keramikhelluborð með innbyggðri viftu, bakaraofn, sambyggður bakarofn/örbylgjuofn, innbyggður ísskápur með frystihólfi, innbyggð uppþvottavél og stálvaskur. Hljóðdúkur í lofti, innfeld lýsing auk kastarabrautar yfir eyju.
Svefnherbergi eru með vinylparket á gólfi, sérsmíðaða skápa, hljóðdúkur í lofti og innfeld lýsing.
Á baðherbergjum eru innréttingar sérsmíðaðar úr harðspón, ljósar að lit. Flísar eru bæði á gólfum og veggjum. Í baðherbergi inn af hjónaherbergi er bæði sturta og baðkar.
Þvottahús er með flísar á gólfi, mjög rúmgóðar innréttingar með stæði fyrir þvottavél og þurrkara auk vasks. 

Í bílakjallara fylgir eigninni eitt bílastæði, breitt og gott stæði, merkt B15 á teikningu. Búið er að koma fyrir hleðslustöð við bílastæðið.

Rúmgóð 13,2 fm. geymsla fylgir eigninni og er hún staðsett í kjallara. Auk þess er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Annað:
-Búið er að setja upp gardínur og myrkvunartjöld í allri íbúðinni
-Loftskiptikerfi er sjálfstætt fyrir hverja íbúð
-Allar innihurðir eru sérsmíðaðar af Húsheild/Hyrnu, ljósar að lit, ná alla leið upp í loft og með innfelldum lömum.
-Allar innréttingar eru sérsmiðaðar af Húsheild/Hyrnu
-Parket er lagt með fiskibeinamynstri
-Mikið lagt upp úr hljóðvist 
-KNX ljósastýring
-Hitanemar fyrir gólfhita í ljósrofum
-Læstir djúpgámar við endan á bílaplani
-Hiti í innkeyrslu að bílakjallara
-Mjög rúmgóður bílakjallari með tveimur akgreinum
-Mjög snyrtileg sameign sem verður með veggfóðri á veggjum og teppi á stigum

Nánar:
Skilalýsing fjölbýlishúss við Hulduholt 2


Húsið er úr krosslímdu timbureiningum, einangrað að utan og klætt með alubond álklæðningu. 
Bílastæði:  Eitt stæði fylgir hverri íbúð í bílakjallara og sameiginleg stæði á malbikuðu bílaplani framan við hús. Snjóbræðsla er í aðkeyrslu að bílakjallara. 
Lyftur: Lyftur frá Héðinn/Schindler er í báðum stigahúsum með teppi á gólfi. 
Kjallari: Hjóla- og vagnageymsla er með steyptu gólfi með epoxy. Geymslur eru með loftræstar og er epoxy á gólfum.
Stigahús: Flísar eru á gólfum á jarðhæð teppi á stigum og stigapöllum. Hönnun stigahúsa er hlý og heimilisleg. Í stigahúsum er hljóðdúkur í loftum og innfeld lýsing.
Forstofa: Í forstofu eru fataskápar og flísar á gólfum.
Baðherbergi: Baðinnréttingar eru sérsmíðaðar af Húsheild/Hyrnu úr harðspón, ljósar að lit.
Þrýstiopnun á innréttingu. Bekkplata úr steini. Spegill við innréttingu innfeld lýsing. Flísar á veggjum og gólfi. Vegghengt klósett, glerveggir í sturtu, innfeld blöndunartæki af vandaðri gerð. Hljóðdúkur í lofti innfelld lýsing.
Eldhús: Allar innréttingar eru sérsmíðaðar af Húsheild/Hyrnu úr harðspón, ljós eik. Bekkplötur eru úr stein.  Skúffubrautir, hengsli eru af viðurkenndri og vandaðri gerð. Þrýstiopnun á innrétingu. Í eldhúsinnréttingu er svart keramikhelluborð með innbygðri viftu, bakaraofn,sambyggður bakarofn/örbylgjuofn, innbyggður ísskápur með fristihólfi innbyggð uppþvottavél og stálvaskur. Hljóðdúkur í lofti innfeld lýsing.
Herbergi: Skápar eru sérsmíðaðar af Húsheild/Hyrnu úr harðspón, ljós eik.Þrýstiopnun á skápum. Í herbergjum vinilparket með fiskibeinamunstri. Hljóðdúkur í lofti innfeld lýsing.
Þvottahús: Í þvotthúsi er þvottatækjainnrétting. Allar innréttingar eru sérsmíðaðar af Húsheild/Hyrnu úr harðspón, ljós eik. Þrýstiopnun á innréttingu. Í þvottahúsi er skolvaskur úr stáli. Flísar á gólfi. Hljóðdúkur í lofti innfeld lýsing.
Innihurðir: Eru sérsmíðaðar af Húsheild/Hyrnu, ljós eik. Innfelldar lamir í hurðum.
Upphitun: Íbúðirnar eru með gólfhita en í bílakjallara eru vatnshitablásarar. 
Loftskiptakerfi: Loftskiptakerfi er í öllum íbúðum.
Raflögn: Öll raflögn er fullfrágengin þ.e. tengt í allar dósir og rofar komnir á sinn stað. Síma- og sjónvarpslagnir í stofurými og herbergjum. Kappalýsing er á baðherbergi og allrými, einnig fylgja loftljós í þvottahúsi og baðherbergi. Reiknað er með lögn fyrir hleðslustöð í bílastæði.
Sorpgeymsla: Djúpgámar eru við enda bílastæðis til norðurs. 
 
Íbúðin er klár til afhendingar strax.

Byggingaraðili er Húsheild/Hyrna.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 


Frekari upplýsingar:
olafur@byggd.is
greta@byggd.is
bjorn@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2024
Fasteignanúmer
2527503
Byggingarefni
St+timbur
Númer hæðar
B
Númer eignar
15
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
11.200.000 kr.
BYGGÐ
http://www.byggd.is

Myndir (41)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hulduholt 2b íbúð 105
Bílastæði
Hulduholt 2b íbúð 105
603 Akureyri
131 m2
Fjölbýlishús
322
844 þ.kr./m2
110.585.000 kr.
Skoða eignina Asparskógar 18 - íbúð 302
Bílastæði
Opið hús:14. júní kl 13:00-13:30
Asparskógar 18 - íbúð 302
300 Akranes
56.8 m2
Fjölbýlishús
211
949 þ.kr./m2
53.900.000 kr.
Skoða eignina Asparskógar 18 - íbúð 211
Bílastæði
Opið hús:14. júní kl 13:00-13:30
Asparskógar 18 - íbúð 211
300 Akranes
80.1 m2
Fjölbýlishús
312
873 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Asparskógar 18 - íbúð 101
Bílastæði
Opið hús:14. júní kl 13:00-13:30
Asparskógar 18 - íbúð 101
300 Akranes
71.6 m2
Fjölbýlishús
312
892 þ.kr./m2
63.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin