Miðvikudagur 18. febrúar
Skráð 18. feb. 2026

Ástjörn 13

Nýbygging • FjölbýlishúsSuðurland/Selfoss-800
69.1 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
50.600.000 kr.
Fermetraverð
732.272 kr./m2
Fasteignamat
22.250.000 kr.
Byggt 2025
Lyfta
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2540048
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Númer íbúðar
4
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
4 - Fokheld bygging
HÚS fasteignasala kynnir í einkasölu. Ástjörn 13 Selfossi. 5 hæða nýtt og vandað fjölbýlishús með 35 íbúðum frá 54,8 m2 upp í 109,9 m2 ásamt sameign á jarðhæð.

Í húsinu eru tveggja, þriggja og fjögurra herbergja íbúðir. Ástjörn 13 er í austurhluta bæjarins þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og leikskóli í næsta nágrenni. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd að utan með viðhaldslitlum klæðningum. Ál/tré gluggar. Öllum íbúðum verður skilað fullbúnum með gólfefnum. Frágengin lóð með malbikuðum bílastæðum. 
31,5fm bílskúr fylgir íbúðum 101, 307,407 og 507


Innréttingar og skápar eru framleiddar úr vönduðu slitsterku melamin efni að utan og innan. Borðplötur eru harðplastlagðar. Helluborð, háfur/vifta, bakarofn, innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur af vandaðri gerð fylgja öllum íbúðum. Á íbúðum verður vinylparket af vandaðri gerð fullfrágengið ásamt gólflistum. Flísar í ljósum lit verða á gólfi á böðum. Geymslur eru innan íbúða en geymsluskápar í minnstu íbúðunum á jarðhæð.  Hjóla og vagnageymsla í sameign. 

Afhending er 29 maí.

Hlutdeildarlán frá HMS í boði á hluta íbúða á fyrstu og annarri hæð.

Traustur byggingaraðili, Pálmatré, með áratugareynslu í mannvirkjagerð.

Íbúð 304 er tveggja herbergja 69,1 fm á þriðju hæð. Stórar suðursvalir. Innra skipulag, Forstofa með fataskáp. Hol/gangur. Eldhús og stofa í opnu rými. Hurð út á svalir. Eitt svefnherbergi með fataskáp. Baðherbergi með opinni sturtu og innréttingu ásamt innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. Geymsla innan íbúðar.

Á sölusíðu fyrir Ástjörn 13 má finna teikningar af öllum íbúðum, skilalýsingu o.fl.
https://astjorn13.is/
Ath tölvumyndir innan úr íbúðum eru til hliðsjónar til að sýna áferð innréttinga og efnisval.

Nánari upplýsingar veita fasteignasalar hjá Húsi fasteignasölu Austurvegi 26 Selfossi.
Bókið skoðun, við erum til þjónustu reiðubúin.

Loftur Erlingsson s 8969565 eða loftur@husfasteign.is
Ragna Valdís Sigurjónsdóttir s 8466581 eða ragna@husfasteign.is
Steindór Guðmundsson s 8621996 eða steindór@husfasteign.is
Hafsteinn Þorvaldsson s 8918891 eða hafsteinn@husfasteign.is
Snorri Sigurfinnsson s. 8648090 eða snorri@husfasteign.is


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila. 0,4% fyrir fyrstu eignar kaupendur.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu
5. Skipulagsgjald 0,3 % af brunabótamati sem lagt er á að lokinni lokaúttekt.

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Hús fasteignasala.
https://husfasteign.is

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Eyravegur 38
Opið hús:24. feb. kl 16:45-17:15
Skoða eignina Eyravegur 38
Eyravegur 38
800 Selfoss
73.5 m2
Fjölbýlishús
312
680 þ.kr./m2
49.990.000 kr.
Skoða eignina Grænamörk 2
Skoða eignina Grænamörk 2
Grænamörk 2
800 Selfoss
64.2 m2
Fjölbýlishús
211
779 þ.kr./m2
50.000.000 kr.
Skoða eignina Víkurmói 4 - Íbúð 202
Opið hús:22. feb. kl 12:00-12:45
Víkurmói 4 - Íbúð 202
800 Selfoss
77.5 m2
Fjölbýlishús
312
677 þ.kr./m2
52.500.000 kr.
Skoða eignina Eyravegur 34B - Íb. 503
Eyravegur 34B - Íb. 503
800 Selfoss
66.5 m2
Fjölbýlishús
312
750 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin