BÓKIÐ EINKASKOÐUN Í SÍMA 8482666 EÐA audur@fastlind.isAuður Magnúsdóttir löggiltur fasteignasali og Lind fasteignasala kynna nýtt og vandað fjölbýlishús á þremur hæðum við Vorbraut 3, Garðabæ. Eignirnar afhendast fullbúnar með gólfefnum. Afhending í September 2026.Heimasíðu verkefnisins má finna
hérByggingaraðili:
Þarfaþing hf.Aðalhönnuður:
Arkís arkitektar ehf.Eignin skilast fullbúin með gólfefnum, innbyggðum ísskáp, frystir og uppþvottavél. Sjá skilalýsingu hér.Íbúð 103: 82,1 fm, 2ja herbergja íbúð á 1. hæð, þar af er 9,5 fm geymsla. Yfirbyggð verönd og sérmerkt stæði í bílageymslu.Nánari lýsing:Forstofa: Parket á gólfi. Gott skápapláss.
Eldhús: Opið við borðstofu/stofu. Eldhúsinnrétting frá Selós, framhliðar eru matt beige, litur 5050 frá Selós, með svörtum griphöldum. Borðplötur eru sérsmíðaðar úr Quarts stein 20 mm þykkar með undirlímdum vaski úr stáli. Innbyggður ísskápur, frystir, uppþvottavél fylgir. Bakaraofn og helluborð. Elhústækin eru af gerðinni AEG að undanskildum háfi sem er af gerðinni Elica.
Borðstofa/stofa: Í opnu rými, úr stofu er útgengt út á yfirbyggðar svalir.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum að hluta. Flísarnar eru 60X120 ljós gráar að lit. Upphengt salerni, rúmgóð sturta með sturtugleri. Hreinlætistæki eru frá Grohe. Sturtutækin eru hitastýrð og innbyggð. Innrétting frá Selós matt beige að lit. Borðplatan er sérsmíðuð úr Quarts steini 20mm þykk með undirlímdum vaski. Innrétting undir þvottavél og þurrkara.
Hjónaherbergi: 14,5 fm. Parket á gólfi, fataskápar frá Selós,, matt beige að lit með svörtum höldum.
Svalir: 10,9 fm yfirbyggður pallur með opnanlegu svalaskjóli.
Geymsla: 9,5 fm geymsla í sameign.
Bílastæði: Sérmerkt bílastæði í bílakjallara.
*Gólf eru parketlögð harðparketi að gerðinni Meister (Nutmeg Castle) frá Parka, Gólf í baðherbergjum og þvottahúsum eru flísalögð með flísum frá Elson ehf.
*Allir veggir og loft innan íbúða eru málaðir í hálfum hör.
*Allar innréttingar eru af vandaðri gerð frá Selós, liturinn á skápafrontum er ljósdrappaður.
*Borðplötur eru úr quartz (Glencoe) stein frá Rein steinsmiðju.
*Innihurðar eru hvítar yfirfelldar í yfirhæð (220cm) af gerðinni Dana frá Parka ehf.
*Öll tæki hússins koma frá Ormsson og eru af gerðinni AEG (að undanskildum háfum undir skápum sem eru af gerðinni Elica.
*Vélrænt loftræstikerfi er í öllum íbúðum sem nýtir varma inniloftsins við loftskipti, sem lækkar kyndingar kostnað og er samstæða staðsett í þvottahúsi/baðherbergi allra íbúða.
Lóð: Lóðin verður frágengin, frágengin bílastæði og hellulagðar gönguleiðir. Aðkoma að húsi verður hellulögð og snjóbræðsla þar sem við á samkv. lagnateikningum. Sameiginleg útisvæði verða frágengin í samræmi við lóðarhönnun. Grassvæði verða fágengin og gróðurbeð grófjöfnuð, gróður fylgir ekki. Séreignareitir verða frágengnir.Leiktæki og búnaður á lóð verður eins og upp gefið er á teikningum.
Fasteignamyndir eru tölvugerðar og birtar með fyrirvara um breytingar.
Fermetratölur eru birtar með fyrirvara. Eignaskiptayfirlýsing gildir.Kaupandi greiðir 0,3% af væntanlegu brunabótamáti þegar það verður lagt á íbúðina.
Nánari upplýsingar veitir Auður Magnúsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8482666, tölvupóstur audur@fastlind.is.