Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is- kynnir til sölu - Miðstræti 7 Bolungarvík - Stórt og fallegt einbýli á þremur pöllum með aukaíbúð og tveimur bílskúrum, samtals 264 m² að stærð!
Í húsinu er forstofa, fimm svefnherbergi, þrjár stofur, sólstofa, þrjú baðherbergi, tvö eldhús, þvottahús og geymsla/kyndiklefi, bílskúrar eru 28,7 m² og 21,6 m² að stærð.
Aðalinngangur er á miðpalli að framanverðu.
Forstofa með granítflísum á gólfi og fatahengi.
Lítið salerni inn af forstofu.
Gangur og svefnálma með harðparketi á gólfi.
Þrjú svefnherbergi, hjónaherbergi með parketi á gólfi og stórum fataskáp.
Annað svefnherbergi einnig með parketi á gólfi og litlum fataskáp.
Þriðja herbergið með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi með baðkari og sturtuklefa, innrétting, flísar á gólfi og veggjum, handklæðaofn. Í sturtu er lúga niður á neðri hæð fyrir þvott.
Stór borðstofa með harðparketi á gólfi og innbyggðum skenk, innangengt þaðan í ágæta sólstofu með útgangu út í bakgarð.
Stórt herbergi sem er hægt að nýta sem svefnherbergi eða skrifstofu, harðparket á gólfi, inn af herbergi er lítil geymsla.
Húsið var byggt árið 1958 en borðstofa og herbergi var bætt við húsið í kringum 1973.
Efri pallur, nokkur þrep upp upp á tepplagðan stigapall.
Eldhús með ágætri innréttingu, dúkur á gólfi. helluborð og ofn, kústaskápur í vegg, tengi fyrir uppþvottavél og ágætur borðkrókur.
Stór teppalögð stofa með frábæru útsýni út á djúpið.
Neðri pallur, sérinngangur norðan megin.
Forstofa með flísum á gólfi. Stigi þar upp á miðpall.
Kyndiklefi og rúmgott þvottahús.
Séríbúð, gangur með teppi á gólfi.
Eldhús með gamalli innréttingu og tækjum.
Ágæt stofa með dúk á gólfi.
Svefnherbergi með dúk á gólfi.
Baðherbergi með sturtu, flísar á gólfi og vegg.
Efri bílskúr með steyptu gólfi og timburhurð með rafstýrðum opnara, vaskur og hiti í gólfi.
Neðri bílskúr er með rafmagni og hita, nýttur sem geymsla í dag.
Stór gróinn garður, hellulögð stétt að ofanverðu , steypt bílastæði fyrir framan bílskúr.
Húsið er einangrað og klætt með Steni klæðningu.