Helgafell fasteignasala kynnir til sölu 174,6fm. raðhús á tveimur hæðum ásamt bílskúr við Hjallahlíð 15 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð neðri hæð 82,9fm., efri hæð 66,6fm og bílskúr 25,1fm.
Eignin Skiptist í stofu/borðstofu, eldhús, fjögur svefnherbergi, þvottahús, baðherbergi, gestasalerni og bílskúr ásamt geymsluskúr.
Innréttingar, innihurðir og skápar eru sérsmíðaðar og spónlagðar með Öl (elri).
Stór verönd með heitum pott og hellulagt bílaplan með snjóbræðslu eru við eignina. Neðri hæð - stofa/borðstofa, eldhús, svefnherbergi, þvottahús og gestasalerni.
Anddyri: Parrket/vynil dúkur á gólfi og góður skápur.
Gestasalerni: Á hægri hönd úr anddyrinu er gestasalerni með handlaug og innréttingu.
Hjónaherbergi: Rúmgott með parket/vynil dúk á gólfi. Rúmgóðir skápar.
Þvottahús: Rúmgott, flísar á gólfi, innrétting fyrir þvottavél og þurrkara ásamt skápum og ræstivask.
Stofa/borðstofa: Gott alrými, 6mm. endingargott parket/vynil dúkur á gólfi sem hefur verið lagt yfir eikarparket. Útgengt er út á suður-verönd úr stofunni.
Eldhús: Opið eldhús við stofu, upprunaleg, snyrtileg og góð innrétting úr elri. Flísar milli efri og neðri skápa, span helluborð, ofn í vinnuhæð, uppþvottavél og gott skápapláss.
Efri hæð, hol, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Gólfflötur á efri hæð er u.þ.b. 12fm. meiri en 66,6fm., þar sem hluti af efri hæðinni er undir súð.
Stigi upp á efri hæðina, parket/vynil dúkur á gólfi lagt yfir eikarparket. Undir stiga er lítil geymsla.
Komið er upp í rúmgott
hol sem í dag er nýtt sem
sjónvarpsherbergi. Þrjú rúmgóð
svefnherbergi með parketi/vynil dúk á gólfi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi, upphengt salerni, baðkar, fín innrétting í góðu lagi og sturtuklefi.
Við hlið baðherbergis er lítil geymsla með urð fram í holið.
Bílskúr: 25,1fm., vaskur með heitu og köldu vatni, innrétting og skápur. Bílskúrshurðaropnari. Ljósleiðari.
Úr bílskúrnum er innangengt inní um
15fm. óeinangraða geymslu sem er ekki í fm. tölu hússins Úr geymslunni er svo útgengt út á pallinn/veröndina.
Fallegur, afgirtur pallur til suðurs. Í framhaldi af pallinum er svo búið að helluleggja garðinn sem þarfnast ekki mikillar umhirðu. Falleg blómabeð og ekkert gras til að slá. Fyrir framan bílskúr er hellulagt plan með snjóbræðslu.Fallegt, staðsteypt og steinað með kvarsi fjölskylduhús á mjög eftirsóttum stað í Mosfellsbæ. Skóli, leikskóli og sundlaug í næstu götu. Golfvöllurinn í göngufæri eða í ökufæri á golfbíl.
Börn þurfa ekki að ganga yfir götu á leið í skólann.Linkur á teikningar
hér.Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Helgafell fasteignasala - sími 566 0000Rúnar Þór Árnason, lgf., sími: 775 5805 / email: runar@helgafellfasteignasala.is