Mánudagur 9. mars
Fasteignaleitin
Opið hús:13. mars kl 16:15-17:00
Skráð 9. mars 2026

Lynghólar 5 Dalvík

ParhúsNorðurland/Dalvík-620
146.7 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
74.900.000 kr.
Fermetraverð
510.566 kr./m2
Fasteignamat
60.300.000 kr.
Brunabótamat
75.750.000 kr.
ÍE
Íris Egilsdóttir
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2280454
Landnúmer
199832
Húsgerð
Parhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Yfirfarið 2023 - Ljós og dimmerar endurnýjaðir
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegir
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Lóð
50
Upphitun
Hitaveita - Gólfhiti, Skipt um mótorloka og tölvu stjórnkerfis fyrir gólfhitastýringu 2024.
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
- Eignin er ekki að fullu í samræmi við teikningar (Eldhús hefur verið opnað, svo eldhús, stofa og skáli sameinast í alrými auk þess sem opið er inn á þvottagang)
Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Lynghólar 5, 620 Dalvík - 
Skemmtileg 4ra herbergja parhúsaíbúð á einni hæð með bílskúr, í botnlangagötu á Dalvík - Stærð 146,7 m², þar af telur bílskúr 35,1 m²

Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í einu alrými, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottagang/þvottahús auk bílskúrs.

Forstofa 
er með flísum á gólfi.
Í eldhúsi er snyrtileg dökk innrétting með eikar bekkplötu auk eyju í sama stíl. Flísar eru á hluta veggja. Gaseldavél og stæði fyrir uppþvottavél.
Eldhús og stofa eru í opnu og rúmgóðu rými með aukinni lofthæð. Flísar eru á gólfum og innfelld lýsing í lofti. Úr stofu er gengið út á verönd með skjólveggjum.
Svefnherbergin eru þrjú talsins, öll með flísum á gólfi, gólfhita og spónlögðum eikar fataskápum.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, dökk innrétting, baðkar, sturtu og handklæðaofni. 
Þvottahús/þvottagangur er með góðri spónlagðri eikar innréttingu. Þar er fellistigi upp á geymsluloft. Úr þvottahúsi er gengið inn í bílskúr.
Bílskúr er með flísum á gólfi og ágætri hvítri innréttingu með skolvask. Gönguhurð er á skúrnum við hliðina á rafdrifinni innkeyrsluhurð.
Lóðin er snyrtileg. Framan við bílskúrinn er rúmgott hellulagt bílaplan með snjóbræðslu í auk annars hellulagðs bílastæðis sunnan við steypta stétt heima að aðalinngangi hvar ekki er snjóbræðsla.  Pláss er fyrir 4 - 5 bíla.  Skjólveggir umlykja vestur- og suðurhlið hússins. Þar má finna steypta verönd auk grasflatar.


Annað
- Ljósar flísar eru á öllum gólfum íbúðar og gráar flísar í bílskúr.
- Gólfhiti er í allri eigninni.
- Innfelld ljós eru í alrými, baðherbergi og forstofu.
- Aukin lofthæð er í alrými og svefnherbergjum.
- Ljósleiðari er kominn inn og tengdur.
- Eignin er skemmtilega staðsett og opið svæði er vestan við húsið.
- Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.


Seljandi hefur aldrei haft afnot af eigninni. Seljandi þekkir því ekki eignina umfram það sem fram kemur í opinberum gögnum og hægt er að sjá við sjónskoðun. Því leggur seljandi ríka áherslu á það við væntanlega kaupendur að þeir gæti sérstakrar árvekni við skoðun og úttekt á eigninni og veitir seljandi eða fasteignasali kaupanda allan nauðsynlegan aðgang að til þess.


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2005
3.5 m2
Fasteignanúmer
2280454
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
13.800.000 kr.

Myndir (27)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Reynidalur 3
Skoða eignina Reynidalur 3
Reynidalur 3
260 Reykjanesbær
97.9 m2
Fjölbýlishús
313
653 þ.kr./m2
63.900.000 kr.
Skoða eignina Apalskarð 8 - 202
Bílastæði
Apalskarð 8 - 202
221 Hafnarfjörður
82.1 m2
Fjölbýlishús
312
840 þ.kr./m2
69.000.000 kr.
Skoða eignina Apalskarð 8 - 302
Apalskarð 8 - 302
221 Hafnarfjörður
80.3 m2
Fjölbýlishús
312
833 þ.kr./m2
66.900.000 kr.
Skoða eignina Birkiteigur 33
Bílskúr
Skoða eignina Birkiteigur 33
Birkiteigur 33
230 Reykjanesbær
179.3 m2
Raðhús
524
462 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin