Hrafnkell Pálmi lgf. kynnir þetta bjarta og vel skipulagða sex herbergja einbýlishús á einni hæð á þessum vinsælum stað í Grafarvogi.
Húsið hefur verið töluvert mikið endurnýjað (sjá nánar hér að neðan). Möguleiki á bílskúr.
Grunnskóli í göngufæri og stutt í alla helstu verslun og þjónustu og fallegar gönguleiðir.- Flott hönnun á húsinu með góðu skipulagi og mikið af gólfsíðum gluggum sem hleypa góðri birtu inn
- Stór lóð með mikla möguleika, nýlegur skjólaveggur
- Fjögur svefnherbergi og tvö baðherbergi
- Teikningar og samþykki fyrir bílskúr
- Gólfhiti í húsinu
Nánari upplýsingar veitir:
Hrafnkell P. H. Pálmason Löggiltur fasteignasali / 690 8236 / hrafnkell@fastlind.isSkipulag:
Húsið skiptist í anddyri, gestasalerni, baðherbergi, fjögur svefnherbergi, eldhús, stofu og borðstofu í sama rými og þvottahús / geymslu, möguleiki á bílskúr.Nánari lýsing:Anddyrið er með flísum á gólfi og opnu fatahengi.
Gestasnyrtingin er við hlið forstofu með fallegum flísum á gólfi og hluta veggja með upphengdu salerni og vask með vaskaskáp.
Baðherbergið er við hlið gestasnyrtingu og með fallegum flísum á gólfi og hluta veggja. Vaskur og góður vaskaskápur. Upphengt salerni. Flott sturtugler og vönduð innbyggð blöndunartæki.
Eldhúsið er með fallegri innréttingu með miklu skápaplássi og vinnurými. Stór eldhúseyja sem hægt er að sitja við. Parket á gólf. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Ofn í góðri vinnuhæð. Góður gluggi til vesturs.
Stofan og borðstofan mynda saman rúmgott og bjart alrými. Parket á gólfi. Góðir gluggar til suðurs og vesturs. Parket á gólfi.
Hjónaherbergið er inn af stofunni og er rúmgott með góðum fataskápum. Parket á gólfi. Gluggar til austurs og suðurs.
Svefnherbergi II er rúmgott með parket á gólfi, góðum fataskáp og gluggi til austurs.
Svefnherbergi III er með parket á gólfi, tvöföldum fatskáp og glugga til vesturs.
Svefnherbergi IV er með parket á gólfi, tvöföldum fatskáp og glugga til austurs.
Þvottahúsið/geymslan er rúmgóð með flísum á gólfi og hleri niður í skriðkjallara undir húsinu.
Samþykki og teikningar fyrir
29.5fm bílskúr á lóð við innkeyrslu. Sjá meðfylgjandi teikningar.
Innkeyrslan er malarborin.
Húsið er byggt árið 1985.
Eignin er 146.4fm einbýlishús og ásamt húsinu er steypt plata fyrir bílskúr (29.5fm) sem einnig er skráð. Birt stærð er því 175.9 fm.
Fyrirhugað fasteignamat 2027 er kr. 125.600.000-.Endurnýjun/framkvæmdir árin 2023 - 2026:- Skipt um allar innréttingar, gólfefni, fataskápa, hurðar, heilsparslað alla veggi og málað
- Eldhúsinnrétting og tæki eru frá Kvik og Siemens (keypt hjá Rafha).
- Skipt um pípulagnir í öllu húsinu
- Dregið í rafmagn
- Varmadæla sett upp
- Hiti í gólf - Hitagrind fyrir gólf
- Loft tekið niður og komið fyrir rafmagni sem var áður utan á liggjandi.
- Kappar fyrir gardínur og led lýsing
- Skipt um heita- og kaldavatnslögn útí götu
- Frárennsli yfirfarið.
- Loftun á skriðkjallara/lagnakjallara
- 17 aspir fjarlægðar, eitrað fyrir rótum sem svo voru fjarlægðar með gröfu
- Skipt um jarðveg á lóð (þrisvar)
- Skjólveggur og girðingar
- Stoðir fyrir grind og pall (140 fm).
- Sáð í grasflöt.
Funafold 13, 112 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 204-2234 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Funafold 13 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 204-2234, birt stærð 175.9 fm.
Nánari upplýsingar veitir Hrafnkell P. H. Pálmason Löggiltur fasteignasali, í síma 690 8236, tölvupóstur hrafnkell@fastlind.is.-----------------------------------------------------------------------Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.