Fimmtudagur 30. júlí
Fasteignaleitin
Opið hús:08. ágúst kl 12:00-12:30
Skráð 30. júlí 2026

Dynjandisvegur 4

SumarhúsSuðurland/Selfoss-806
81.8 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
52.000.000 kr.
Fermetraverð
635.697 kr./m2
Fasteignamat
36.900.000 kr.
Brunabótamat
36.000.000 kr.
Mynd af Daði Runólfsson
Daði Runólfsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali
Byggt 2000
Geymsla 15m2
Garður
Pallur
Heitur pottur
Sérinng.
Fasteignanúmer
2250047
Landnúmer
189102
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Sagt í lagi
Raflagnir
Sagt í lagi
Frárennslislagnir
Sagt í lagi
Gluggar / Gler
Í lagi
Þak
Þarf að mála járn
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd/Pallur
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Gimli fasteignasala og Daði Runólfsson kynna:  Dynjandisvegur 4, 806 Selfoss.

Sumarhús á einstaklega fallegri 4200 fm leigulóð sem liggur að Brúará í landi Spóastaða í Biskupstungum. Frábærlega staðsett í einungis klukkustundarfjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu í nálægð við mikla þjónustu og afþreyingu í Reykholti, Laugarási, Laugarvatni og Flúðum. Hitaveita er í húsinu. Lóðarleigusamningur var endurnýjaður árið 2023 til 25 ára. 

Í húsinu eru þrjú svefnherbergi og svefnloft, góð stofa og eldhús. Nýlega endurnýjað baðherbergi með beinu aðgengi á verönd með heitum potti. Geymsla/búr er einnig í húsinu. Á lóð er vandað 15 fm hús sem núna er notað sem geymsla en má auðveldlega breyta í gestahús. Gott bílastæði er á lóð og falleg aðkoma að húsinu. Mjög góð verönd er við húsið með fallegu útsýni. Lokað rafmagnshlið er inn á svæðið.

Nánari lýsing:
Inngangur: Komið er inn í anddyri/gang af verönd á hlið hússins. 
Geymsla/búr: Við enda gangs er geymsla/búr með hillum og neðri skápum. 
Svefnherbergi: Þrjú svefnherbergi eru í húsinu. 
Stofa og borðstofa: Rúmgóð stofa og borðstofa með fallegum gólfsíðum gluggum og útsýni að Brúará. Aðgengi á verönd.
Eldhús: Góð innrétting með uppþvottavél.
Baðherbergi: Baðherbergi hefur verið smekklega endurnýjað með góðri innréttingu og speglaskáp, „walk in“ sturtu og upphengdu salerni. Flísalagt í hólf og gólf. Beint aðgengi er af baðherbergi út á verönd í heitan pott. 
Risloft: Rúmgott með góðu svefnplássi, opnanlegum glugga og geymsluplássi undir súð. 
Geymsla/gestahús á lóð: Vandaður óskráður geymsluskúr er á lóð sem auðveldlega væri hægt að breyta í gestahús.

Hér gefst gott tækifæri til að eignast frábærlega vel staðsett og fallegt sumarhús á útsýnislóð við Brúará með miklu gistiplássi. Héðan er stutt í almenna þjónustu, verslanir, veitingahús og glæsileg baðlón í nálægum byggðarkjörnum. 

Eignin Dynjandisvegur 4 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 225-0047, birt stærð 81.8 fm. Nánar tiltekið eign merkt 01-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Bókið skoðun hjá Daði Runólfsson  í síma 6981164, eða dr@gimli.is

Nánari upplýsingar veitir: Daði Runólfsson Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 6981164, tölvupóstur dr@gimli.is eða gimli@gimli.is

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
15 m2
Fasteignanúmer
2250047
Byggingarefni
Timbur
Lýsing
Óskráður geymsluskúr á lóð sem hægt væri að breyta í gestahús. 

Myndir (42)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Mýrarheiði 1, Útey 101
Mýrarheiði 1, Útey 101
806 Selfoss
69.3 m2
Sumarhús
312
431 þ.kr./m2
29.900.000 kr.
Skoða eignina Mýrarheiði 1, Útey 101
B75A6611.jpg
Mýrarheiði 1, Útey 101
806 Selfoss
69.3 m2
Sumarhús
312
431 þ.kr./m2
29.900.000 kr.
Skoða eignina Bjarkarbraut 7
Á einni hæð
Skoða eignina Bjarkarbraut 7
Bjarkarbraut 7
805 Selfoss
74 m2
Sumarhús
413
472 þ.kr./m2
34.900.000 kr.
Skoða eignina Heiðarbraut 4
Á einni hæð
Skoða eignina Heiðarbraut 4
Heiðarbraut 4
805 Selfoss
80.4 m2
Sumarhús
624
558 þ.kr./m2
44.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin