Fasteignasalan TORG kynnir: Rúmgóða 4ra herbergja íbúð á jarðhæð með þvottahúsi innan íbúðar og lokaðri timburverönd til vesturs. Eignin var öll endurgerð árið 2011. Sérsmíðaðar innréttingar, steinn er á borðum í eldhúsi og baðherbergi. Gólfhiti er í íbúðinni. Fjölbýlið hefur fengið gott viðhald síðustu ár.
Frekari upplýsingar veitir Dórothea fasteignasali, dorothea@fstorg.is, s. 898-3326.
Skráð stærð eignar samkvæmt FMR er 94,2 fm. Lítil sérgeymsla fylgir í sameign.
Nánari lýsing
Íbúðin er með flæðandi harðparketi á alrými, eldhúsi, þvottahúsi, stofu og herbergjum. Flísar eru á gólfi á baðherbergi.
Forstofa: Frá forstofu eru rúmgóðir fataskápar á gangi.
Eldhús: Rúmgott eldhús með U-laga innréttingu. Áföst eyja er við vegg sem hægt er að sitja við. Steinn er á borði. Spanhelluborð og stálofn eru í vinnuhæð. Innbyggð uppþvottavél og stálísskápur með frysti fylgir með eigninni.
Þvottahús: Er innaf eldhúsi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Stofa/borðstofa: Rúmgott rými með útgengi út á lokaða timburverönd til vesturs.
Baðherbergi: Gluggi er á baðherbergi. Það er flísalagt í hólf og gólf. Þar er baðkar með sturtuaðstöðu, baðinnrétting með steini á borði, glerskápar fyrir ofan vask, upphengt salerni og handklæðaofn.
Hjónaherbergi: Fataskápur er eftir heilum vegg.
Barnaherbergi 1: Rúmgott herbergi með frístandandi fataskáp með speglahurðum.
Barnaherbergi 2: Rúmgott herbergi án fataskáps.
Í sameign er lítil sérgeymsla, sameiginlegt þvottahús ásamt vagna- og hjólageymslu.
Hér er um að ræða fjölskylduvæna eign þar sem stutt er í leik- og grunnskóla ásamt sundlaug og íþróttasvæði. Göngufæri er í flesta þjónustu og í einstaklega fallegt útivistarsvæði í Árbænum og við Elliðaárdalinn. Góð tenging er við stofnbrautir og almenningssamgöngur frá eigninni.
Allar frekari upplýsingar veitir Dórothea E. Jóhannsdóttir, fasteignasali, dorothea@fstorg.is, s. 898-3326.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan TORG bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.100,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 74.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.