ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina Ásabraut 39a, 245 Sandgerði.
Nýlegt 3ja herbergja staðsteypt raðhús við Ásabraut 39a. Eignin er staðsett í rólegri botngötu stutt frá grænu svæði, íþróttamannvirkjum, skóla og nýjum leikskóla. Vönduð eign með sérsmíðuðum innréttingum. Byggingarár 2021. Birt stærð 85.2 fm. Nánari upplýsingar veitir:
Jóna Björg Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 692-5959, tölvupóstur jona@allt.is Nánari lýsing eignar:Allar innréttingar og skápar er sérsmíði!Forstofa: hefur flísar á gólfi.
Baðherbergi: hefur flísar á gólfum og að hluta á veggjum, þar er góð innrétting með nægu geymsluplássi og eins þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, walk-in sturta og upphengt klósett.
Herberg I: er með vínyl parketi og stórum góðum hvítum fataskáp.
Herberg II: er með vínyl parketi og góðu fataherbergi með rúmgóðum skápaplássi, Geymsluloft er yfir fataherbergi.
Eldhús og stofa er í opnu rými með vínyl parketi á gólfi. Gengið er út á sólpall frá stofu.
Eldhús hefur góða hvíta innréttingu, innbyggður ísskápur, uppþvottavél, ofn og innbyggður örbylgjuofn.
Innkeyrsla steypt með snjóbræðslukerfi, góður sólpallur til suð-vestur.
Gólfhitakerfi á allri íbúðinni.
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.