Eignin er seld með fyrirvara.
Jóhannes E. Levy kynnir eignina Safamýri 23, 108 Reykjavík, rúmgóð sérhæð með yfirbyggðum svölum og bílskúr í þríbýli á þessum eftirsótta stað. Teikning eftir Kjartan Sveinsson. Um er að ræða íbúð á 1. hæð sem er miðhæðin í húsinu, skráð sex herbergja (4+2), sannkallað fjölskylduhús. Nánar tiltekið eign merkt 01-0101 íbúð og 02-0101 bílskúr, fastanúmer 201-4142, samtals að birtri stærð
161,5 m² hjá HMS. Falleg og vel skipulögð íbúð, íbúðin sjálf (135,3 m²) sem skiptist í andyri, herbergi, gestasalerni, skála, eldhús, stofu & borðstofu, hol, hjónaherbergi og 2 svefnherbergi á sér herbergisgangi með baðherbergi, sameiginlegt þvottahús í kjallara og sérgeymsla innaf því.
Suðursvalir, yfirbyggðar að hluta. Eigninni fylgir
bílskúrinn nær húsinu
(26,2 m²) með rúmgóðu einkabílastæði fyrir framan.
Andyri: rúmgott anddyri með flísum á gólfi.
Forstofuherbergi og
gestasalerni er aðgengilegt úr anddyrinu.
Skáli: úr anddyri er komið inn í hol með fataskáp, þar á hægri hönd er skáli er skv. teikningu, en mögulegt að breyta honum í 5. herbergið með því að setja nýjan veggstubb.
Eldhús: eldhúsið er með hvítri U-laga innréttingu, nýlegu span helluborði & bakaraofni frá AEG.
Stofa og borðstofa: björt og falleg aðliggjandi stofa og borðstofa með útgengi á suðsvalir.
Svalir: Stórar L-laga svalir sem hefur verið skipt upp með því byggja yfir lengri hlutann, þann sem snýr í vestur og svo taka við einstaklega skjólsælar og sólríkar suðursvalir Yfirbyggði hlutinn er 7,1 m² og eru þessir fermetrar
aukalega við birta stærð eignarinnar.
Hjónaherbergi: er rúmgott með fataskápum og er innst á svefnhergisgangi ásamt tveimur öðrum
barnaherbergjum og baðherberginu.
Baðherbergi: Snyrtilegt baðherbergi með sturtuklefa og upphengdu salerni. Hvít innrétting, handklæðaofn og gólfhiti.
Þvottahús: sameiginlegt með tveimur öðrum íbúðum og er í kjallara hússins.
Geymsla: sérgeymsla er í kjallara innaf þvottahúsinu.
Bílskúr: eigninni fylgir fínn bílskúr með sér bílastæði fyrir framan.
Frábærlega staðsett eign í miðju höfuðborgarinnar, stutt er í alla þjónustu, leikskólinn Álftaborg og Álftamýraskóli eru steinsnar frá sem og íþróttasvæði Víkings Safamýri.
Nánari upplýsingar veitir Jóhannes E. Levy, löggiltur fasteignasali í síma
7721050 eða
tölvupósti