Mánudagur 6. júlí
Fasteignaleitin
Skráð 6. júlí 2026

Dofrahella 1

Atvinnuhúsn.Höfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
205.7 m2
Verð
91.900.000 kr.
Fermetraverð
446.767 kr./m2
Brunabótamat
60.850.000 kr.
Sérinng.
Fasteignanúmer
23300382
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Inngangur
Sérinngangur

Dofrahella 1A, 221 Hafnarfjörður
Vandað og fjölhæft atvinnuhúsnæði með miklum nýtingarmöguleikum


Höfði fasteignasala kynnir til sölu vandaða og vel skipulagða atvinnueign við Dofrahellu 1A, 221 Hafnarfirði, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 233-0038, ásamt öllum tilheyrandi lóðar- og sameignarréttindum.
Um er að ræða vandað atvinnu- og iðnaðarhúsnæði á tveimur hæðum, samtals 205,7 fm, á eftirsóttum stað í Hafnarfirði. Eigninni fylgir rúmgott malbikað athafnasvæði með plássi fyrir allt að sjö 20 feta gáma. Núverandi skipulag býður upp á möguleika á útleigutekjum. 

Helstu upplýsingar
205,7 fm • Engin virðisaukaskattskvöð • Möguleiki á útleigutekjum • Tvær innkeyrsluhurðir með rafmagnsopnun • Athafnasvæði fyrir allt að sjö 20 feta gáma

Nánari lýsing
Neðri hæð eignarinnar er 139,1 fm og hefur þegar (nánast) verið skipt upp í tvær sjálfstæðar einingar. Á hæðinni eru tvö salerni, kaffiaðstaða/geymsla og tvær innkeyrsluhurðir frá Héðni. Hurðirnar eru 3,70 m á hæð og 3,50 m á breidd, báðar með rafmagnsopnun. Núverandi fyrirkomulag veitir mikinn sveigjanleika og gerir kleift að nýta hana annaðhvort sem eina heild eða með útleigu að hluta.

Efri hæðin, eða milliloftið, er 66,6 fm með um 2,7 metra lofthæð. Þar er góð skrifstofuaðstaða með eldhúsi, baðherbergi og geymslu. Gengið er upp á efri hæð um stiga frá hægri einingunni og nýtist efri hæðin því með þeirri einingu í núverandi skipulagi.

Húsnæðið er bjart og vel skipulagt með góðri lofthæð og rúmgóðum vinnusvæðum. Tvær innkeyrsluhurðir með rafmagnsopnun auðvelda vörumóttöku og umferð stærri ökutækja, en fyrir framan eignina er rúmgott athafna- og bílastæði sem styður við skilvirkan daglegan rekstur.

Bygging og frágangur
Við uppbyggingu hússins hefur verið lögð áhersla á vandaðan frágang, traust byggingargæði og góða endingu. Burðarvirki er úr límtré á járnbentri steinsteyptri botnplötu. Þak og útveggir eru byggð úr 120 mm PIR-samlokueiningum sem tryggja góða einangrun og hagkvæman rekstur. Gluggar og gönguhurðir eru úr áli með tvöföldu K-gleri. Brunahólfandi skilveggir uppfylla EI60 kröfur og burðarvirki R60. Húsið er búið neyðarlýsingu, reykskynjurum og tengibúnaði fyrir rafhleðslu við starfseiningar. Lóðin er malbikuð með góðri aðkomu og rúmgóðu athafnasvæði.

Helstu kostir
·       205,7 fm atvinnu- og iðnaðarhúsnæði.
·       Neðri hæð 139,1 fm og efri hæð 66,6 fm.
·       Neðri hæð hefur þegar verið skipt upp í tvær sjálfstæðar einingar.
·       Möguleiki á útleigutekjum.
·       Góð skrifstofuaðstaða á efri hæð.
·       Tvær innkeyrsluhurðir frá Héðni, báðar með rafmagnsopnun.
·       Hurðir 3,70 m á hæð og 3,50 m á breidd.
·       Athafnasvæði fyrir allt að sjö 20 feta gáma.
·       Engin virðisaukaskattskvöð hvílir á eigninni.
·       Bjart húsnæði með góðri lofthæð og góðu skipulagi.
·       Traust byggingargæði með límtrésburðarvirki.


Staðsetning
Dofrahella er eitt öflugasta atvinnusvæði Hafnarfjarðar þar sem stutt er í helstu stofnæðar höfuðborgarsvæðisins og aðgengi fyrir vöruflutninga er afar gott.

Þetta er vel skipulögð og fjölhæf atvinnueign þar sem gott skipulag, traust byggingargæði og fjölbreyttir nýtingarmöguleikar fara saman. Eignin hentar jafnt fyrirtækjum í eigin rekstri sem fjárfestum sem leita að vandaðri atvinnueign með möguleika á útleigutekjum.


Frekari upplýsingar veita
Kristinn Tómasson
Viðskiptafræðingur MBA
Löggiltur fasteignasali
Sími: 820 6797
kristinn@hofdi.is

Ásmundur Skeggjason
Löggiltur fasteignasali
Sími: 895 3000
as@hofdi.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Höfði Fasteignasala
http://www.hofdi.is

Myndir (32)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hnoðravellir 21
Skoða eignina Hnoðravellir 21
Hnoðravellir 21
221 Hafnarfjörður
213.5 m2
Raðhús
625
632 þ.kr./m2
134.900.000 kr.
Skoða eignina Stekkjarhvammur 33
Stekkjarhvammur 33
220 Hafnarfjörður
208.4 m2
Raðhús
524
647 þ.kr./m2
134.900.000 kr.
Skoða eignina Álhella 32C
Skoða eignina Álhella 32C
Álhella 32C
221 Hafnarfjörður
50 m2
Atvinnuhúsn.
1
398 þ.kr./m2
19.900.000 kr.
Skoða eignina Virkisás 19
Bílskúr
Skoða eignina Virkisás 19
Virkisás 19
221 Hafnarfjörður
217.9 m2
Einbýlishús
524
688 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin