Þriðjudagur 29. september
Fasteignaleitin
Skráð 14. júlí 2026

SPÁNAREIGNIR - Rojales

FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
122 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
38.500.000 kr.
Fermetraverð
315.574 kr./m2
BH
Berta Hawkins
Garður
Svalir
Bílastæði
Sérinng.
Fasteignanúmer
704130726
Landnúmer
0
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Sér garður
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*SPLUNKUNÝTT Í SÖLU* *FALLEGAR SÉRHÆÐIR Í LITLU FJÖLBÝLI* *FRÁBÆR STAÐSETNING* *STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU* HEIMILISTÆKI OG JACUZZI FYLGJA*


Fallegar og vel hannaðar efri- og neðri sérhæðir í litlu fjölbýli í Rojales, fallegum spænskum bæ, um 45 mín akstur suður af Alicante. Tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi, góð stofa, borðstofa og fallegt eldhús í opnu rými. Efri hæðir með svölum og þaksvölum og neðri hæðir með sérgarði. Stæði í bílakjallara fylgir og lyfta er úr kjallara alla leið upp á þaksvalir.

Allar upplýsingar veita:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali.GSM 00354 893 2495. adalheidur@spanareignir.is 
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is GSM 0034 615 112 869 

Nánari lýsing:

Komið er inn í opið rými sem sameinar stofu, borðstofu og eldhús. Tvö svefnherbergi með innbyggðum fataskápum og tvö baðherbergi. Á neðri hæðum er gengið úr stofu út í 46 fm garð en af efri hæðum er gengið út á 10 fm svalir. Einnig eru tæplega 70 fm þaksvalir með fallegu útsýni. Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun. Stæði í bílageymslu og þaðan er lyfta upp á þaksvalir. Gólfhiti er á baðherbergjum. Eldhústæki, þvottavél og jacuzzi fylgja. Rafmagn er í gluggahlerum í svefnherbergjum.

Úrval verslana og veitingastaða eru í göngufæri og alla þjónustu er að finna í miðbæ Rojales sem er steinsnar frá. Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni, t.d.  La Marquesa, og  La Finca. Einnig eru fleiri góðir golfvellir á svæðinu, s.s. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin og Las Colinas. Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Guardamar og ca. 25 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.

Rojales er skemmtilegur bær á Costa Blanca svæðinu sem sameinar hefðbundið sjarmerandi spænskt bæjarlíf og iðandi alþjóðlegt samfélag. 

Verð frá 265.900 evrum  + kostn. (ISK 38.500.000 + kostn. miðað við gengi 1Evra=145 ISK.)

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fá húsin afhent fullbúin húsgögnum gegn aukagjaldi.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: bílastæði, sér garður, air con, jacuzzi,
Svæði: Costa Blanca, Rojales,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
704130726

Myndir (15)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Orkureiturinn D1 301
Orkureiturinn D1 301
108 Reykjavík
126.9 m2
Fjölbýlishús
312
1024 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Orkureiturinn D1 309
Opið hús:01. okt. kl 12:00-12:30
Orkureiturinn D1 309
108 Reykjavík
137.8 m2
Fjölbýlishús
322
1102 þ.kr./m2
151.900.000 kr.
Skoða eignina Orkureiturinn D1 510
Orkureiturinn D1 510
108 Reykjavík
126.5 m2
Fjölbýlishús
423
1185 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Skoða eignina Drápuhlíð 7
Efsta hæð
Skoða eignina Drápuhlíð 7
Drápuhlíð 7
105 Reykjavík
116.2 m2
Fjölbýlishús
413
706 þ.kr./m2
82.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin