Sunnudagur 10. maí
Fasteignaleitin
Opið hús:12. maí kl 17:00-17:30
Skráð 24. mars 2026

Háaleitisbraut 79

ParhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
157.1 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
145.000.000 kr.
Fermetraverð
922.979 kr./m2
Fasteignamat
117.850.000 kr.
Brunabótamat
77.450.000 kr.
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2015029
Landnúmer
103772
Húsgerð
Parhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Í lagi
Raflagnir
Í lagi
Frárennslislagnir
Í lagi
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler.
Þak
endurbætt þakjárn
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
LIND fasteignasala og Elías Haraldsson löggildur fasteignasali kynna til sölu : glæsilegt 148,9 + 8,2 fermetra herbergi inn af bílskúr eða samtals 157,1 fermetra parhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr (20 fm + milliloft). Fallegur suðurgarður með heitum potti. Eignin hefur verið talsvert endurnýjuð m.a. frá fyrri eiganda. Nýtt járn á þak ca. 2008. Endurnýjaðar ofnalagnir ca. 2009. Núverandi eigendur kaupa húsið 2011 og hafa gert miklar endurbætur á síðast liðnum árum.

Vatnslagnir- heitt og kalt vatn, hiti lagður í gólf á stofu og eldhúsi, eldhús endurnýjað, sér rafmagnstafla í eldhúsi fyrir span, aðal rafmagnstafla endurnýjuð að hluta, harðparket lagt á öll rými. Árið 2018 var allur garðurinn tekin í gegn og settur heitur pottur, há girðing sem lokar vel garðinum, gluggar og gler í svefnherbergjum suður og bílskúr ásamt hiti lagður í bílskúrsgólf. Árið 2019 er þvottahús endurnýjað með flísum og góðum skápum. Árið 2020 rafmagnstafla í bílskúr (inntak) endurnýjuð að hluta- hleðslustöð 3-fasa.

Árið 2020 var allt baðherbergið tekið í gegn með vönduðum og tímalausum frágangi. Hönnun er eftir Berglindi Berndseni innanhúsarkitekt. Flísar eru frá Ebson og borðplata úr svörtu graníti frá S. Helgason. Sérsmíðaðar innréttingar frá Aðalvík. Sturtugler er dökkgrátt frá Íspan og blöndunartæki eru frá Ísleifur Jónsson. Gólfhiti er í baðherberginu. Um er ræða mjög sjarmerandi parhús með mikilli lofthæð og eru allar ljósabrautir og kastarar frá Lúmex.

Eignin skiptist : forstofu, hol/gangur, þvottahús, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, eldhús, borðstofa og stofa.

Nánari lýsing : 
Forstofa:
flísalögð með góðu fatahengi.
Hol/gangur: parketlagt með innfeldum fataskáp.
Þvottahús: flísalagt með góðum skápum, skolvask og þvottavél og þurkari í vinnuhæð. Góður opnanlegur gluggi.
Baðherbergi: flísalagt með innréttingu við vask, vegghengt salerni, sturta með innbyggðum blöndunartækjum, handklæða ofn og hiti í gólfi. opnanlegur gluggi á baði. sjá lýsingu hér að ofan.
Hjónaherbergi: parketlagt með litlu fataherbergi.
Barnaherbergi l: parketlagt með fataskáp.
Barnaherbergi ll: parketlagt með fataskáp.
Eldhús: parketlagt, með fallegri hvítri innréttingu, mjög öflugt span helluborð og ofn í vinnuhæð. Tvöfaldur ísskápur frá Samsung með ís og klakavél.
Borðstofa: parketlögð, þrjú þrep niður í stofu.
Stofa: parketlögð með útgang út í fallegan suður garð.

Lóð: mjög snyrtileg, hellulögn fyrir framan bílskúr. Fallegur suður bakgarður með hellulagðri verönd og heitum potti.

Hús að utan: lítur vel út.

Parhús á frábærum og eftirsóttum stað við Háaleitisbraut í Reykjavík þaðan sem stutt er í alla verslun og þjónustu.

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
09/11/201033.900.000 kr.32.000.000 kr.148.9 m2214.909 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (44)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hallveigartröð 2
Opið hús:10. maí kl 13:30-14:00
Hallveigartröð 2
320 Reykholt í Borgarfirði
116.4 m2
Parhús
413
Fasteignamat 41.200.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Lofnarbrunnur 26
Bílskúr
Opið hús:13. maí kl 16:00-16:30
Skoða eignina Lofnarbrunnur 26
Lofnarbrunnur 26
113 Reykjavík
155 m2
Raðhús
312
832 þ.kr./m2
129.000.000 kr.
Skoða eignina Axlarás 72
Bílskúr
Skoða eignina Axlarás 72
Axlarás 72
221 Hafnarfjörður
194.6 m2
Raðhús
43
719 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Skoða eignina Suðurgata 5
Bílskúr
Skoða eignina Suðurgata 5
Suðurgata 5
230 Reykjanesbær
289.2 m2
Einbýlishús
8
444 þ.kr./m2
128.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin