Gimli fasteignasala og Herdís Valb. Hölludóttir kynna virkilega fallega og rúmgóða 2-3 herbergja íbúð með sérinngangi á jarðhæð við Tröllakór 13-15. Sólrík og afgirt suður verönd og stæði í bílakjallara.
Eignin skiptist í: Forstofu, herberbergi, baðherbergi, þvottaherbergi, stofu/borðstofu, sjónvarpshol og stæði í bílageymslu. Eignin er núna með einum góðu herbergi en auðvelt er að bæta við einu herbergi með því að stúka af stofu. Bókið skoðun hjá Herdísi í síma 694-6166 eða herdis@gimli.is
* Sólrík og afgirt viðarverönd til suðurs
* Þvottaherbergi innan íbúðar
* Sérinngangur
* Stæði í bílageymslu. NÁNARI LÝSING:Forstofan er með fataskáp og flísar eru á gólfi.
Svefnherbergi: harðparket á gólfi, góðir skápar.
Stofa/borðstofa/sjónvarpshol er mjög rúmgóð og í sameiginulegu rými með eldhúsinu, parket á góli. Gengið er út á suðurverönd úr stofunni. Harðparket á gólfi.
Eldhús er með góðum innréttingum, eldhúseyju og góðu skápaplássi. Harðparket á gólfi. Gott vinnupláss.
Baðherbergi er með ágætri innréttingu, baðkar og sturtutæki. Flísar á veggjum og gólfi.
Þvottahús er innan íbúðar með steingólfi.
Veröndin er hellulögð, afgirt og snýr í suður.
Sérgeymsla, 6,7 fm, með hillum er í sameign.
Sameign er snyrtileg og þar er rúmgóð hjóla- og vagnageymsla.
Bílakjallari: Íbúðinni fylgir sérstæði í bílageymslu.
Næsta umhverfi: Tröllakór 13-15 er neðsta blokkin, austan megin í Tröllkór og því er þar mikið óhindrað útsýni til austurs og í suður. Eignin er staðsett á vinsælum stað í Kópavogi, við hliðina á Kórnum og Samskipa reiðhöllin, er beint fyrir framan. Auk þess er stutt í alla þjónustu s.s. grunnskóla, leikskóla, Krónuna og Salalaug. Þá er stutt í fallegar gönguleiðir og margskonar útivistarmöguleika eins og Guðmundarlund, Heiðmörk og Vífilsstaðavatn.
Niðurlag: Virkilega falleg og rúmgóð íbúð á fallegum stað í Kópavogi. Stutt er í helstu þjónustu s.s. skóla, leikskóla og verslanir ofl.Nánari upplýsingar veitir: Herdís Valb. Hölludóttir Löggiltur fasteignasali og lögfræðingur, í síma 6946166, tölvupóstur herdis@gimli.is eða gimli@gimli.is
Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá
Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur:
gimli@gimli.isGimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala