Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Kaupstaður fasteignasala kynnir: Fallega 2 herbergja íbúð á 1. hæð með sérinngangi í fjölbýlishúsi byggðu 2021. Frábært tækifæri til að eignast fallega og vandaða 2 herbergja íbúð í Lindarhverfinu í Kópavogi. Stutt er í alla þjónustu, verslarnir, skóla og leikskóla.
Aukin lofthæð er í íbúðinni og svalir. Ljósar innréttingar með dökku uppbroti frá VOKE-3 í eldhúsi, tæki frá AEG og ELICA, blöndunartæki frá GROHE og gólfflísar frá Álfaborg. Þrílituð álklæðning utanhúss og hitalögn í helstu gönguleiðum. Góð staðsetning í Kópavogi. Skráð flatarmál er 51,8 fm.
Forstofa: Sérinngangur gengið er inn í forstofu. Flísar á gólfi og fataskápur
Alrými: Alrými er eldhús og stofa í einu opnu rými. Geymsla og aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara er innan íbúðar.
Eldhús: Eldhúsið hluti af alrými.Innrétting frá VOKE-III og vönduð heimilistæki. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél.
Baðherbergi: Fallegt baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf. “labb-inn” sturta, upphengt salerni.
Svefnherbergi: Rúmgott með útgengi á svalir, parket á gólfi og fataskáp.
Svalir: Gengið er út frá svefnherbergi.
Sameign: Í sameign er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Geymsluskápur fylgir eigninni.
Eign sem vert er að skoða.
FyrirvararÍ lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
---|---|---|---|---|---|
15/04/2021 | 24.000.000 kr. | 43.885.000 kr. | 51.8 m2 | 847.200 kr. | Já |
Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
---|---|---|---|---|
200 | 53 | 53,9 | ||
200 | 65.9 | 53,9 | ||
200 | 40.6 | 52,9 | ||
200 | 60.2 | 57,5 | ||
200 | 40.6 | 52,9 |