Þriðjudagur 18. ágúst
Fasteignaleitin
Skráð 18. ágúst 2026

Ystumóar 2

SumarhúsVesturland/Reykholt í Borgarfirði/Reykholt (Borgarfirði)-320
135.4 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
5 Baðherb.
Verð
124.500.000 kr.
Fermetraverð
919.498 kr./m2
Brunabótamat
41.850.000 kr.
Byggt 2008
Pallur
Heitur pottur
Sérinng.
Fasteignanúmer
23162241
Húsgerð
Sumarhús
Inngangur
Sérinngangur

Borg fasteignasala kynnir 95 fm heilsárshús ásamt tveimur frístandandi gestahúsum (um 20 fm hvort) við Ystumóa 2 í Borgarbyggð.

** Ath, lóðin er skráð verslunar- og þjónustulóð, því er heimilt að leigja eigninar út til lengri eða skemmri tíma ***

Hér er á ferðinni einstakt tækifæri fyrir þá sem vilja eignast bústað fyrir sig og sína en einnig þá sem vilja skapa sér atvinnutækifæri í rólegum uppsveitum Borgarfjarðar.

Aðalhús er reisulegt og vandað hús: 
Innra skipulag hússins skiptist í forstofu, stofu og borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús
Komið er inn í rúmgóða forstofu og þaðan inn í bjart alrými sem skiptist í eldhús og borð- og setustofu. Stofan er björt og þaðan er fallegt útsýni til norðvesturs, yfir fjöll, Hvítá og nærliggjandi svæði. Úr eldhúsinu er útsýni til suðurs og austurs.
Eldhús er búið eldhúseyju, góðu skápa- og vinnuplássi og nýlegri innréttingu.
Svefnherbergin eru þrjú, öll björt og í góðri stærð.
Baðherbergi er með sturtu, upphengdu salerni og vaskinnréttingu.
Pallur er við húsið og nær yfir suðaustur- og vesturhlið þess. Á pallinum er heitur pottur.
Húsið stendur á stórri og gróinni eignarlóð. Á norðurjaðri lóðarinnar er einnig 18 fm geymsluhús og þvottahús heitt og kalt vatn. 

Gestahúsin eru einstaklega vönduð og vel hönnuð:
Vestanmegin á lóðinni eru tvö nýbyggð gestahús. Húsin eru spegilmynd hvort af öðru og eru afgirt með háum skjólvegg. Hvor eining er um 20 fm. Við hvort hús er niðurgrafinn, sérsmíðaður steyptur heitur pottur.
Gestahúsin eru vel útbúin. Yfir svefnrýmunum eru stór glerloft og glerútveggur sem gefa rýmunum sérstakt yfirbragð og skapa skemmtilega upplifun.
Í hvoru húsi er eldhús með góðu skápa- og vinnuplássi. Baðherbergin eru vönduð og búin upphengdu salerni, sturtu og handlaug.
Gestahúsin hafa verið í skammtímaleigu undanfarin misseri og henta því vel fyrir þá sem vilja nýta þau til útleigu, en þau geta einnig hentað vel fyrir fjölskyldu og gesti.

Aðlhúsið hefur verið mikið endurnýjað á undanförnum árum. Ný klæðning, ásamt einangrun, er utan á húsinu og nýir gluggar í öllu húsinu. Innandyra hefur einangrun og gólfplötum verið skipt út. Parket og loftaklæðning er nýleg. Raf- og pípulagnir hafa að hluta verið endurnýjaðar fyrir um fjórum árum. Eldhús og baðherbergi hafa verið tekin í gegn og endurnýjuð.


Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Nánari upplýsingar veitir Héðinn Birnir Ásbjörnsson Lögg. fasteignasali, í síma 848 4806, tölvupóstur hedinn@fastborg.is.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.000 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Borg fasteignasala
http://fastborg.is

Myndir (48)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hraunbrekkur 28
Heitur pottur
Hraunbrekkur 28 copy.jpg
Skoða eignina Hraunbrekkur 28
Hraunbrekkur 28
320 Reykholt í Borgarfirði
128.8 m2
Sumarhús
44
698 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Kerhraun B 114
Heitur pottur
Skoða eignina Kerhraun B 114
Kerhraun B 114
805 Selfoss
134.5 m2
Sumarhús
413
683 þ.kr./m2
91.900.000 kr.
Skoða eignina Stekkjarholt 17
Bílskúr
Skoða eignina Stekkjarholt 17
Stekkjarholt 17
300 Akranes
141.5 m2
Hæð
312
491 þ.kr./m2
69.500.000 kr.
Skoða eignina Gilvegur 4
Á einni hæð
Skoða eignina Gilvegur 4
Gilvegur 4
805 Selfoss
129 m2
Sumarhús
414
464 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin