Laugardagur 10. október
Fasteignaleitin
Opið hús:13. okt. kl 17:00-17:30
Skráð 10. okt. 2026

Klapparhlíð 7

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-270
79.7 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
73.900.000 kr.
Fermetraverð
927.227 kr./m2
Brunabótamat
45.150.000 kr.
Byggt 2004
Jarðhæð
Svalir
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
22707091
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Aldir fasteignir og Monika Hjálmtýsdóttir, lögg. fasteignasali – 823-2800 / monika@aldirfasteignir.is kynna:

Fallega og vel skipulagða þriggja herbergja 79,7 m² íbúð á jarðhæð með sérinngangi og stórum, afgirtum sólpalli til suðvesturs við Klapparhlíð 7 í Mosfellsbæ. Íbúðin er í 15 íbúða fjölbýlishúsi sem byggt var árið 2004 og er í örstuttu göngufæri við leikskólann Hulduberg og Höfðaberg, Lágafellsskóla, Lágafellslaug og Íþróttamiðstöðina Lágafell. Íbúðin skiptist í forstofu, hol, eldhús, stofu og borðstofu í björtu, opnu alrými, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús inn af baði. Úr stofu er útgengt á afgirtan timburpall sem er á sérafnotareit íbúðarinnar. Merkt bílastæði á lóð og hefur ibúðin úthlutað bílastæði fyrir framan íbúð (ekki þinglýst eignarheimild).

Birt stærð íbúðar er 73,7 m² og geymslu 6,0 m², samtals 79,7 m².
Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, stofu og borðstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og sérgeymslu.

✅ Falleg og vel skipulögð þriggja herbergja íbúð á jarðhæð
✅ Sérinngangur og stór afgirtur timburpallur til suðvesturs frá stofu
✅ Eign í góðu 15 íbúða fjölbýli byggt árið 2004
✅ 30 bílastæði á lóð og eru hleðslustaurar fyrir rafbíla
✅ Örstutt í leikskóla, grunnskóla, sundlaug og íþróttamiðstöð

Nánari lýsing
Gólfefni og innréttingar:
Nýlegt harðparket á alrými og svefnherbergjum, flísar á forstofu og baðherbergi. Innihurðir og fataskápar eru með krisuberja viðaráferð.
Forstofa: Sérinngangur undir svalagangi. Flísar á gólfi og hvítir fataskápar.
Hol og alrými: Eldhús, stofa og borðstofa í björtu, opnu alrými með stórum gluggum. Harðparket á gólfi.
Eldhús: L-laga hvít innrétting í sveitastíl með glerjuðum efri skápum og eyju, bakarofn í vinnuhæð, helluborð og tengi fyrir uppþvottavél. 
Stofa og borðstofa: Bjart rými með harðparketi. Útgengt er um glerdyr á afgirtan timburpall.
Svefnherbergi: Tvö rúmgóð svefnherbergi með harðparketi. Í hjónaherbergi eru fataskápar eftir heilum vegg. Í minna herberginu er fataskápur
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og við baðkar. Baðkar með sturtutækjum og glerþili, hvít innrétting undir vaski, hvítur efri skápur, spegill, upphengt salerni og handklæðaofn. Rennihurð er inn í þvottahús.
Þvottahús: Inn af baðherbergi. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Pallur og sérafnot: Á sérafnotareitnum er stór timburpallur, afgirtur með viðarskjólvegg, og útiljós eru á skjólveggnum og geymsluskúr. 
Geymsla: 6,0 m² sérgeymsla (rými 0211) á 2. hæð.
Sameign: Í sameign allra eru tæknirými og hjóla- og vagnageymsla.
Bílastæði: Á lóðinni eru 30 bílastæði og eru afnot af þeim í óskiptri sameign samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu. 

Nærumhverfi
Klapparhlíð 7 er í rólegu íbúðahverfi með grænum svæðum og göngustígum umhverfis húsið og líkamsræktartækjum á opnu svæði rétt hjá. Í næsta nágrenni, við Lækjarhlíð, eru leikskólinn Hulduberg, Lágafellsskóli og Íþróttamiðstöðin Lágafell með Lágafellslaug, auk íþróttasalar og líkamsræktar World Class. Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ er í Bjarkarholti. Í miðbæ Mosfellsbæjar er að finna alla helstu verslun og þjónustu ásamt bókasafni ofl. Íþróttamiðstöðin að Varmá og Hlíðavöllur, golfvöllur Golfklúbbs Mosfellsbæjar við ströndina, eru einnig í bænum.

Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar og skoðun:
Monika Hjálmtýsdóttir, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur – 823-2800 / monika@aldirfasteignir.is 
 

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (41)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Laugaborg 0221
Hleðslustöð
Opið hús:11. okt. kl 13:00-13:30
laugab. 221.jpg
Skoða eignina Laugaborg 0221
Laugaborg 0221
105 Reykjavík
102,8 m2
Fjölbýlishús
312
972 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg 409
Hleðslustöð
Opið hús:11. okt. kl 13:00-13:30
laugaborg 409.jpg
Skoða eignina Laugaborg 409
Laugaborg 409
105 Reykjavík
98,1 m2
Fjölbýlishús
312
989 þ.kr./m2
97.000.000 kr.
Skoða eignina Apalskarð 4A
Bílastæði
Opið hús:12. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Apalskarð 4A
Apalskarð 4A
221 Hafnarfjörður
87,5 m2
Fjölbýlishús
312
787 þ.kr./m2
68.900.000 kr.
Skoða eignina Apalskarð 4 - 403
Bílastæði
Opið hús:12. okt. kl 17:00-17:30
Apalskarð 4 - 403
221 Hafnarfjörður
102 m2
Fjölbýlishús
413
809 þ.kr./m2
82.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin