Miðvikudagur 30. september
Fasteignaleitin
Opið hús:01. okt. kl 17:00-18:00
Skráð 23. sept. 2026

Vefarastræti 7-9

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-270
85.1 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
72.900.000 kr.
Fermetraverð
856.639 kr./m2
Brunabótamat
62.050.000 kr.
Byggt 2017
Jarðhæð
Svalir
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
23587171
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Eignamiðlun kynnir:

Eignamiðlun og Ólafur H. Guðgeirsson kynna í sölu mjög fallega og vel skipulagða 85,1 fermetra þriggja herbergja íbúð á 1. hæð með sérinngangi, afgirtri verönd og bílastæði í bílakjallara við Vefarastræti  7-9 í Mosfellsbæ. Vandaður frágangur með eikarparketi og innréttingum frá HTH. Eignin er skráð 85,1 fermeter í fasteignamati og er 5,3 fermetra geymsla innan íbúðar í þeirri tölu. Sérlega barnvæn staðsetning með skóla, leikskóla og ungbarnaleikskóla í stuttu göngufæri. Gott íþrótta og útivistarsvæði er í göngufæri. Helgafellslandið í Mosfellsbæ er í mikilli nálægð við náttúruna og Álafoss-kvosina, perlu Mosfellsbæjar. Stutt er í fallegar gönguleiðir. Allar upplýsingar veitir Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, lgfs., í síma 663-2508 eða olafur@eignamidlun.is

Til að undirbúa kauptilboð þá er skynsamlegt að fá söluverðmat á þinni eign, þér að kostnaðarlausu. Hringið og ræðið málið í síma 663-2508.

Íbúðin:
Komið er inn í flísalagt forstofurými þar sem er fataskápur og falleg eikarlituð hilla yfir ofni, en rýmið er opið til stofu. Mjög fallegt eikarparket er á öllum meginrýmum eignarinnar, ásamt eikarlituðum innréttingum og hurðum, sem gefur eigninni mjög fallegt og hlýlegt yfirbragð. Alrýmið er rúmgott og bjart, með stórum glugga í átt að garði en einnig nýtur birtu frá stórum glugga í eldhúsi. Eldhús er með L-laga eikarinnréttingu með ljósri borðplötu, innbyggðri uppþvottavél og flísaplötum á milli skápa. Gengið er úr stofu út á 23 fermetra suðvestur verönd með skjólveggjum á þrjá vegu.
Hjónaherbergi er rúmgott og bjart með þreföldum fataskáp og skemmtilegu niðurteknu lofti fyrir lýsingu sem setur mikinn svip á rýmið. Barnaherbergi er sömuleiðis rúmgott og með tvöföldum fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt, gólf og veggir, með gráum flísum á gólfi og hvítum flísum á veggjum. Handklæðaofn, vegghengt salerni, göngusturta með glerskilrúmi, eikarlituð innrétting með plássi fyrir þvottavél og tengi fyrir þurrkara.
Geymsla innan íbúðar er rúmgóð en þar er hægt að vera með þurrkara
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign.

Umhverfið: 
Vefarastræti 7-11 er sameiginleg lóð með tveimur aðskildum fjölbýlishúsum á tveimur og þremur hæðum auk einnar íbúðar á kjallarahæð og sameiginlegrar bílgeymslu. 35 íbúðir eru í húsunum. Í bílgeymslu eru 28 bílastæði. Á lóðinni norðanvert við húsið eru tíu bílastæði. Þar af eru tvö stæði sérmerkt hreyfihömluðum.
Aðgengi að íbúðunum er um tvö stigahús, inn í annað þeirra er gengið á vesturhlið og inn í hitt á norðurhlið. Auk þess eru sérinngangar á austurhlið og á jarðhæð norðurhliðar. Ein lyfta er í hvoru stigahúsi með aðgengi að hæðum, kjallara og bílgeymslu. Í kjallara eru bílastæði og inntaksrými veitna. Aðgengi að bílgeymslu í kjallara er um stigahúsin. Tvær stakstæðar hjóla- og vagnageymslur eru á lóð.

Vönduð og falleg eign sem vert er að skoða, frábærlega staðsett fyrir fjölskyldu.

Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegi 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.is
 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (46)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Grandavegur 7
Opið hús:03. okt. kl 12:00-12:30
Skoða eignina Grandavegur 7
Grandavegur 7
107 Reykjavík
68.8 m2
Fjölbýlishús
312
994 þ.kr./m2
68.400.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 24 íb. 305
Bílastæði
Áshamar 24 íb. 305
221 Hafnarfjörður
107.7 m2
Fjölbýlishús
423
747 þ.kr./m2
80.500.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 26 íb. 305
Bílastæði
Áshamar 26 íb. 305
221 Hafnarfjörður
107 m2
Fjölbýlishús
423
752 þ.kr./m2
80.500.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 24 íb. 204
Bílastæði
Áshamar 24 íb. 204
221 Hafnarfjörður
81.3 m2
Fjölbýlishús
312
849 þ.kr./m2
69.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin