Föstudagur 13. nóvember
Fasteignaleitin
Opið hús:17. nóv. kl 17:30-18:00
Skráð 12. nóv. 2026

Álfaskeið 82 (301)

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
148.3 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
Verð
84.900.000 kr.
Fermetraverð
572.488 kr./m2
Fasteignamat
82.350.000 kr.
Brunabótamat
58.140.000 kr.
Mynd af Jórunn Skúladóttir
Jórunn Skúladóttir
Lögg. fasteignasali
Byggt 1965
3. hæð af 4
Svalir
Bílskúr
Fasteignanúmer
2072957
Landnúmer
119892
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
4
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Leigulóð
Álfaskeið 82 Hafnarfirði. - björt 5 herbergja íbúð með suðursvölum og bílskúr 
Falleg 5. herbergja íbúð með stórum gluggum, suðursvölum, fjögur svefnherbergi og eitt herbergi innaf stofu sem er nýtt sem skrifstofa í dag og fallegar bjartar stofur bæði borðstofa og stofa. Eldhúsið er hálf opið inn í stofu, innaf eldhúsi er þvottahús. Eigninni fylgir geymsla á 1.hæð og  bílskúr.

Heildarstærð eignarinnar er 148,3 m² samkvæmt skráningu Fasteignaskrár. Þar af er íbúðarhlutinn 117,2 m², bílskúr 23,7 m² og sérgeymsla á 1. hæð 7,4 m². Heildar stærð lóðar 4787 fm.

Nánari upplýsingar um eignina veitir Jórunn lögg.fasteinasali í síma 845-8958 eða jorunn@haborg.is. 

Nánari lýsing á eigninni:
Aðkoman að húsi mjög snyrtileg. Íbúðin er skráð á 3.hæð, en kjallarinn telst fyrsta hæð. Sameignlega stigagangur sem er breiður, snyrtilegur og teppalagður.
Þegar inn í forstofu er komið í íbúðinni, er góð hirsla fyrir fatnað. Forstofan er opin inn í hol íbúðar sem leiðir þig í allar vistaverur hennar. Hjónaherbergið er rúmgott og með góðum fataskápum. Baðherbergið er flísalagt að hluta. Á baði er gluggi og góð snyrtiaðstaða, baðkar með upphengdri sturtu, skápur undir handlaug og spegill fyrir ofan. Bæði barnaherbergin á gangi eru með fataskápum. Fjórða herbergið er innaf stofu og er nýtt í dag sem skrifstofa. Borðstofa og stofa eru mjög bjartar og fallegar, liggja saman í L. Úr stofu er útgengi út á svalir. Eldhúsið er innréttað sitthvoru megin við umferðarrýmið, með fallegri viðar innréttingu og kvartssteini á borðum. Nýtt helluborð og gufugleypir. Innaf eldhúsi er rúmgott þvottahús sem nýtist einnig sem geymsla, fyrir frysti og fleira.  

Gólfefni:
Á gólfum er harðparket sem farið er að sjá á, á nokkrum stöðum.

Húsfélag:
Í húsinu er virkt húsfélag. Ekki eru fyrirhugaðar eða yfirstandandi framkvæmdir. Mánaðar kostnaður vegna íbúðar kr 30.320- innifalið er húseigandatrygging og allur almennur rekstur húsfélags, framkvæmdasjóður kr 10.578- .
Bílskúrinn: Það er sér húsfélag utanum bílskúrana kostnaðurinn á mánuði er kr 10.219- og er framkvæmdagjaldið innifalið. Nýbúið er að leggja rafmagnskapal að bílskúrunum, lagður var nýr rafmagnskapalli inní hvern bílskúr, framkvæmdinni lokið. Rætt hefur verið að safna fyrir áframhaldandi framkvæmdum.

Helstu framkvæmdir sem hafa átt sér stað.
  • þak yfirfarið og málað árið 2018-19
  • Árið 2020 voru allar lagnir myndaðar og fóðraðar að innan, alveg út í götu
  • Gluggar og gler endurnýjaðir á austurhlið hússins
  • Gluggar á suður og vesturhlið, ásamt sameign endurnýjaðir ásamt svalahurð árið 3023
  • Ný rafmagnstafla í sameign árið 2026
Staðsetning: helsta sérstaða er að staðsetningin er í rótgrónu íbúðarhverfi í miðbæjarhluta Hafnarfjarðar, þar sem stutt er í ýmsa mikilvæga þjónustu, skóla, leiksvæði og íþróttastarf. t.d., leikskjólinn Hörðuvellir í fallegu umhverfi með hrauni og náttúru í nágrenninu, Lækjarskóli í göngufæri,Tækniskólinn í nágrenninu. Einnig er Hellisgerði almenningsgarður í hrauninu, Víðistaðatún grænt útivistarsvæði með leiksvæðum, íþróttaaðstöðu og góðu rými fyrir börn.

Um er að ræða fjölskylduvæna 5 herbergja í íbúð, einstök staðsetning fyrir barnafólk, ekki áhyggur yfir aðflytja börnin á milli staða. Þjónustan í göngufæri. Fjölskyldur geta farið út með börn og notið aðstöðunnar án þess að fara í bíl.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
07/03/201628.500.000 kr.35.000.000 kr.148.3 m2236.008 kr.Já
20/05/201119.650.000 kr.23.000.000 kr.148.3 m2155.091 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1978
23.7 m2
Fasteignanúmer
2072957
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
11
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
7.530.000 kr.
Byggt 1965
7.4 m2
Fasteignanúmer
2072957
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
03
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
3.560.000 kr.

Myndir (26)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hringhamar 6
Opið hús:15. nóv. kl 16:30-17:00
uti3.jpeg
Skoða eignina Hringhamar 6
Hringhamar 6
221 Hafnarfjörður
153,1 m2
Fjölbýlishús
524
715 þ.kr./m2
109.500.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 170 íb512 Heklureitur
Bílastæði
Opið hús:15. nóv. kl 13:00-14:00
Laugavegur 170 íb512 Heklureitur
105 Reykjavík
136,7 m2
Fjölbýlishús
322
1353 þ.kr./m2
184.900.000 kr.
Skoða eignina Lautargata 1
Á einni hæð
Skoða eignina Lautargata 1
Lautargata 1
210 Garðabær
137,7 m2
Fjölbýlishús
413
936 þ.kr./m2
128.900.000 kr.
Skoða eignina Núpahraun 23
Hleðslustöð
Skoða eignina Núpahraun 23
Núpahraun 23
815 Þorlákshöfn
138,5 m2
Raðhús
514
577 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin