Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir: Hnjúkamói 14, íbúð 0405. Ný, falleg og björt 94,6 m2 endaíbúð á 4. hæð með 5,3m2 sér geymslu.
Íbúðin er með 3 stórum svefnherbergjum. Úr alrými er utangengt á mjög góðar svalir sem snúa í vestur.
Afhending í september 2026
** Hægt er að bóka skoðun og fá allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á fastsud@gmail.com **
Eignin telur:
* Forstofu með góðum skáp.
* Fallega stofu og eldhús í opnu rými.
Í eldhúsi er falleg, sérsmíðuð Voke III innrétting, vönduð AEG heimilistæki; sjálfhreinsandi ofn, spanhelluborð, innbyggð uppþvottavél og kæli-/frystiskápur
* Utangengt er úr stofunni á 13,1m2 timburklæddar svalir sem snúa í vestur. Frágang við svalir er þannig háttað að á tiltölulega einfaldan hátt er hægt að setja á þær svalalokun.
* 3 stórt svefnherbergi. Góðir fataskápar í hjónaherbergi.
* Glæsilegt baðherbergi með sérsmíðaðri innréttingu, ljósum flísum á gólfi, sturtu úr glerþili og fallegum og endingargóðum Grohe hreinlætisækjum.
* Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara á baðherberginu á snyrtilegan hátt.
* Á öllum gólfum, nema baðherbergi, er fallegt harðparket frá Álfaborg.
* LED-ljós frá Ískraft fylgja öllum rýmum íbúða
* Við húsið er stór, sameiginleg, lokuð hjóla- og vagnageymsla með epoxi á gólfi. Sorpgerði á lóð.
* Möguleiki á rafhleðslu fyrir rafmagnsbíla. Háhraða ljósleiðaratenging er í húsinu.
* Á lóðinni eru 25 bílastæði í óskiptri sameign, þar af 2 fyrir hreyfihamlaða.
* Stéttar næst húsi og gangstígar á lóð verða steypt eða hellulagt, snjóbræðslulögn í gangstíg framan við húsið og að sorpgerði, að öðru leyti verður lóð frágengin með þökum.
Frágangur og efnisval:
Byggingarefni og frágangur endurspegla metnað Stofnhúss fyrir faglegri framkvæmd og lífsgæðum íbúa.
Verkefnið er unnið í samstarfi við trausta hönnuði, verktaka og birgja sem tryggja áreiðanleg gæði í hverju skrefi.
Húsið er hannað sem viðhaldslítið, byggt með efnisvali sem stenst íslenskar aðstæður og tímans tönn.
Húsið er staðsteypt, einangrað að utan og klætt með álklæðningu frá Áltak í fallegum og stílhreinum litum.
Gluggar eru ál/tré frá Byko og lyfta frá Kone þjónustar allar hæðir. Innveggir eru hlaðnir úr hleðslustein frá Steypustöðinni.
Stigahús eru teppalögð með vönduðum handriðum og gólf í sameign á 1. hæð eru klædd slitsterku epoxý kvartsefni.
Innréttingar og innra skipulag Innréttingar:
Ljósar innréttingar í bland við dökka viðaráferð, sérsmíðaðar af Voké-III Heimilistæki:
Vönduð AEG tæki frá Rafha, sjálfhreinsandi ofn, spanhelluborð, innbyggð uppþvottavél og kæli-/frystiskápur
Flísar á baðherbergi: Ljósar ítalskar 60x60 Panaria Surround flísar, frá Álfaborg
Gólfefni: Slitsterkt BerryAlloc Cadenza harðparket, frá Álfaborg
Innihurðir: Stílhreinar hvítlakkaðar yfirfeldar hurðir Dana SAX frá Parki
Hreinlætistæki: Falleg og endingargóð tæki frá Grohe
Lýsing: LED-ljós frá Ískraft fylgja öllum rýmum íbúða
Rofar og tenglar: Hvítur rofabúnaður af gerðinni Jung, frá Reykjafell
Lagnaefni: Vandað pípulagnu- og raflagnaefni frá traustum framleiðendum
FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !
Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.
Heimasíða fasteignasölunnar: https://www.eignin.is/
S 483 3424
Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar:
Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna:
KRÓNU VERSLUN
Apótekarann.
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Super1 pizza (facebook: super 1 pizza)
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Caffe Bristól.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er góður tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) og Landsbankinn
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga.
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi.
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni.
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss).
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.
** Allar helstu fréttir úr sveitafélaginu má finna á www.hafnarfrettir.is