Miðvikudagur 13. maí
Fasteignaleitin
Opið hús:18. maí kl 17:00-17:30
Skráð 13. maí 2026

Skálagerði 9

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
66.5 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
59.900.000 kr.
Fermetraverð
900.752 kr./m2
Fasteignamat
55.700.000 kr.
Brunabótamat
31.950.000 kr.
Mynd af Snorri Björn Sturluson
Snorri Björn Sturluson
Hdl., Löggiltur fasteignasali. Eigandi.
http://valholl.isEignalisti
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2033935
Landnúmer
107761
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
03
Vatnslagnir
Gamlar - Ekki vitað
Raflagnir
Gamlar - Ekki vitað
Frárennslislagnir
Endurnýjaðar fyrir um 1 samkvæmt gjaldkera húsfélagsins í Skálagerði 9. Eigandi þekkir ekki ástand lagna
Gluggar / Gler
Skipt um glugga og gler í eldhús og svefnherbergjum og gler og gluggalista í stofu árið 2020
Þak
Gamalt - yfirfarið 2018
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Lóð
8,65
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Samþykkt hefur verið að lagfæra ofna í sameign. Verið er að safna fyrir framkvæmdinni og ekki verður farið í hana fyrr en til er fyrir henni.
Gallar
Blöndunartæki í eldhús eru orðin þreytt og kominn tími til að endurnýja.
Hefur einstaka sinnum lekið smá undan sturtubotni.
Valhöll kynnir fallega þriggja herbergja íbúð á 2. hæð (efstu hæð) í góðu fjölbýlishúsi í Skálagerði 9, 108 Reykjavík. Góð staðsetning og stutt í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla. 

Eignin skiptist í forsofu, eldhús, stofu, tvo herbergi, baðherbergi og geymslu í kjallara. Í kjallara er svo einnig sameiginlegt þvottahús og vagna- hjólageymsla.

Samkvæmt þinglýstri eingnaskiptayfirlýsingu er íbúðin skráð 62 fm á stærð og geymslan 4,5 fm, samtals 66,5 fm.
Þetta er falleg íbúð sem vert er að skoða. Mjög góð fyrsta eign.

Athugið að eignin verður ekki sýnd fyrr en á opnu húsi  mánudaginn 18. mai milli kl 17.00 og 17.30. Verið velkomin.


Nánari lýsing eignar.
Forstofa: með fataskáp og er parketi á gólfi.
Stofa / borðstofa: með parketi á gólfi og útgengi á svalir.
Baðherbergi: með sturtuklefa, upphengdu salerni, vaskinnréttingu, veggskáp, handklæðaofni og flísum á gólfi. :
Eldhúsið: með ljósri innréttingu, borðkrók, glugga og dúk á gólfi. 
Herbergi I: með rúmgóðum og nýlegum fataskáp og dúk á gólfi.
Herbergi II: lítið herbergi með dúk á gólfi. Í dag er stór fataskápur í herberginu og má hann fylgja með óski kaupendur eftir þvi.
Geymsla: í kjallara með hillum og rafmagnstengli.
Þvottahús: sameiginlegt í kjallara með tengi fyrir þvottavél og þurrkara fyrir hverja íbúð.
Vagna- og hjólageymsla og þurrkherbergi: sameiginlegt í kjallara.

Framkvæmdir á húsi síðustu ár samkvæmt seljanda:
* Ruslaskýli endurnýjað 2025
* Settur upp nýr dyrasími með myndvél 2024.
* Húsið múrviðgert og málað að utan 2022
* Skipt um alla glugga og gler í eldhúsi og svefnherbergjum og skipt um gler og gluggalista í íbúð árið 2020. Einnig var skipt og glugga og gler í öðrum íbúðum eftir þörfum.
* Þak yfirfarið 2018

Framkvæmdir á húsi samkvæmt gjaldkera húsfélagsins í Skálagerði 9.
* Drenað í kringum hús og frárennslislagnir endurnýjaðar í kringum árið 2013.

Nánari upplýsingar veita:
Gylfi Þór fasteignasali í síma 7704040 eða í tölvupósti á netfangið gylfi@valholl.is 

Snorri Björn fasteignasali / lögfræðingur í síma 699-4407 eða í tölvupósti á netfangið snorribs@valholl.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
11/08/202033.000.000 kr.38.300.000 kr.66.5 m2575.939 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (29)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Síðumúli 39
Bílastæði
Opið hús:17. maí kl 12:00-12:30
Skoða eignina Síðumúli 39
Síðumúli 39
108 Reykjavík
79.8 m2
Fjölbýlishús
21
876 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Kristnibraut 10
Skoða eignina Kristnibraut 10
Kristnibraut 10
113 Reykjavík
106.8 m2
Fjölbýlishús
312
748 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 22 íb. 304
Bílastæði
Áshamar 22 íb. 304
221 Hafnarfjörður
82.6 m2
Fjölbýlishús
312
835 þ.kr./m2
69.000.000 kr.
Skoða eignina Tjarnarlundur 16e
Opið hús:18. maí kl 16:15-17:00
Tjarnarlundur 16e
600 Akureyri
82.8 m2
Fjölbýlishús
312
603 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin