CROISETTE - KNIGHT FRANK kynnir í einkasölu 160,6 fm vel skipulagða fjögurra herbergja íbúð á tveimur hæðum með bílskúr við Tjarnabakka 6 í Reykjanesbæ. Eignin er staðsett í fjölskylduvænu hverfi þar sem stutt er í skóla, íþróttastarf og alla helstu þjónustu. Íbúðin skiptist í forstofu, þvottahús, gestasnyrtingu, stofu/borðstofu þar sem útgengt er á skjólgóðan sólpall og eldhús á neðri hæð, en á efri hæð eru þrjú svefnherbergi, rúmgóðar svalir frá hjónaherbergi, alrými/sjónvarpshol og baðherbergi. Eigninni fylgja þrjú bílastæði – tvö fyrir framan inngang og annað fyrir framan bílskúr. Nánari upplýsingar veita Eva Margrét Ásmundsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 822-8196 eða á eva@croisette.is, og Jóhann Axel Thorarensen, aðstoðamaður fasteignasala í síma 896-5651 eða á johann@croisette.is.Smelltu hér til þess að sækja söluyfirlit
Smelltu hér til að sjá eignina í 3D-Eignin er skráð samvæmt HMS samtals 160,6 fm. Íbúðin er 122,8 fm, bílskúr 31,1 fm og geymsla 6,7 fm.Nánari lýsing:Forstofa: Forstofan er með gráum flísum á gólfi og innbyggðum skáp.
Þvottahús: Við forstofu er þvottahús með hvítri innréttingu með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð og vaskaðstöðu. Gráar flísar á gólfi.
Gestabaðherbergi: Er einnig inn af forstofu, hvít innrétting undir handlaug með viðarborðplötu og upphengt salerni. Gráar flísar á gólfi.
Stofa: Björt stofa, með parketi á gólfi. Útgengi út á rúmgóðan sólpall. Stigi upp á efri hæð.
Eldhús: Viðarinnrétting með góðu skápa- og vinnuplássi og hvítri borðplötu. Gráar flísar á gólfi.
Svefnherbergi I: Svefnherbergisálma er á efri hæð. Hjónaherbergi er bjart með aðgengi út á rúmgóðar suður svalir. Parket á gólfi.
Svefnherbergi II: Rúmgott og bjart. Parket á gólfi.
Svefnherbergi III: Rúmgott og bjart. Parket á gólfi.
Sjónvarpshol/alrými: Á efri hæð er rúmgott alrými með stórum fataskáp. Tilvalið að nota sem sjónvarpshol.
Baðherbergi: Gott baðherbergi með hvítri innréttingu með viðarborðplötu, hornbaðkari, handklæðaofni og upphengdu salerni. Gráar flísar á gólfi.
Bílskúr: Staðsettur norðan megin við húsið og er heildarstærð hans 31,1 fm. Hann er búinn hita, rafmagni og vatni, en innst í honum er rúmgóð geymsla.
Útigeymsla: Er norðan megin á lóð, við hlið bílskúrs.
Lóð/sameign: Snyrtileg sameiginleg lóð með leiktækjum. Þrjú bílastæði fylgja eigninni, fyrir framan bílskúr og tvö við inngang.
-Gólfhiti er í allri íbúðinni.Góð fjölskyldueign miðsvæðis í Njarðvík. Stutt í leik- og grunnskóla sem og að Reykjanesbraut.Seljandi hefur ekki haft búsetu í eigninni og hefur því ekki persónulega þekkingu á ástandi hennar. Í ljósi þessa hvetjum við væntanlega kaupendur til að láta framkvæma faglega ástandsskoðun á eigninni áður en kaupsamningur er gerður, í samræmi við 29. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup.Nánari upplýsingar veita: Eva Margrét Ásmundsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 822-8196 eða á eva@croisette.is
Jóhann Axel Thorarensen, aðstoðamaður fasteignasala í síma 896-5651 eða á johann@croisette.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: - Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.