Mánudagur 16. september
Fasteignaleitin
Skráð 21. ágúst 2024
Deila eign
Deila

Vesturgata 41

Tví/Þrí/FjórbýliHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
270 m2
10 Herb.
8 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
159.000.000 kr.
Fermetraverð
588.889 kr./m2
Fasteignamat
122.300.000 kr.
Brunabótamat
87.750.000 kr.
HL
Hreiðar Levý Guðmundsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1889
Þvottahús
Garður
Gæludýr leyfð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2001339
Húsgerð
Tví/Þrí/Fjórbýli
Byggingarefni
St+timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Ekki vitað - Í lagi að því best er vitað
Raflagnir
Endurnýjað að hluta
Frárennslislagnir
Ekki vitað - Í lagi að því best er vitað
Gluggar / Gler
Kominn tími á að yfirfara og skipta um sum gler og glugga.
Þak
Ekki vitað - Í lagi að því best er vitað. Nýjar þakrennur skipt cirka 2016
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Pallur
Lóð
55,53
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Vitað er að það þarf að skipta um nokkur gler í húsinu..
Fasteignamiðlun og Hreiðar Levý lögg. fasteignasali kynna 270fm, glæsilega og mikið uppgerða neðri sérhæð í tvíbýlishúsi að Vesturgötu 41, 101 Reykjavík með sérinngangi, aukinni lofthæð og aukaíbúð í kjallara sem er í útleigu. Eignin hefur verið mikið uppgerð á fallegan hátt á síðustu árum. Glæsileg rými, hátt til lofts og vítt til veggja. 4 rúmgóð svefnherbergi eru í aðalíbúðinni, 2 samliggjandi stofur, rúmgott endurnýjað eldhús með búri, 2 baðherbergi, rúmgott þvottahús með útgengi út í garð ásamt geymslu. Í hluta af kjallara, undir eldra húsi er 73fm aukaíbúð sem er með 4 svefnherbergjum, borðstofu og eldhúsi. Er í dag í útleigu og er möguleiki á að taka yfir þann leigusamning. Eignin var tekin í gegn að stórum hluta árið 2022. Við húsið er sér innkeyrsla með 2-3 bílastæðum sem tilheyra öllu húsinu. Vinsæl staðsetning í gamla Vesturbænum, stutt í alla helstu verslun og þjónustu með miðborgina og Grandann í göngufæri.

Hér er videó þar sem gengið er í gegnum íbúðina (að undanskyldri aukaíbúðinni)


Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða hreidar@fastm.is

Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2025 skv. HMS er 126.450.000kr

Eignin Vesturgata 41 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 200-1339, birt stærð 207.9fm. Í kjallara eru óskráðir 63fm með fullri lofthæð og í full nýtingu. Samtals eru fermetrarnir því 270,9fm

Aðalíbúð er 195fm og skiptist í 134,5fm hæð og 63fm í kjallara. Aðalíbúð skiptist í.
Aðalhæð: Forstofu, eldhús, búr, 2 samliggjandi stofur, baðherbergi, hol og 3 svefnherbergi -Kjallari: Gengið niður stiga úr holi, sturtuherbergi, salerni, svefnherbergi og þvottahús.

Aukaíbúð: Sérinngangur. Anddyri, baðherbergi, borðstofa, eldhús og 4 svefnherbergi.

Framkvæmdasaga frá eiganda: 


* 210 fermetra íbúðin  tekin í gegn  að stórum hluta fyrir utan geymslu og sturtuherbergi árið 2022. Sturtuherbergi tekið í gegn um 2016.
* Í elsta parti hússins allir veggir og loft klæddir með gipsi. Einnig að hluta í nýrri part af byggingu. 
* Gólfefni hafa verið endurnýjuð  nema í geymslu og sturtuherbergi. 
* Allir listar og hurðar hafa verið endurnýjaðar. 
* Eldhús og baðherbergi á efri hæð hafa verið  endurnýjuð. Öll tæki nýleg. 
* Rafmagn endurnýjað að hluta. Bætt við ofnum. 
* Lokað inn á milli 210fm íbúðar yfir í 63 fermetra íbúðina. Sú íbúð með sérinngangi og var tekin í gegn að stórum hluta  2016. Er í útleigu 4 herbergi. 

Nánari lýsing:
Hæð & Kjallari:

1. hæð 
Anddyri: Harðparket á gólfi.
Eldhús: Rúmgott og glæsilegt nýlega uppgert eldhús með ljósri innréttingu og eyju. Mjög gott skápa og vinnupláss með innbyggðri uppþvottavél ásamt eldavél með gashelluborði.
Búr: Innaf eldhúsi. Hvít innrétting og gluggi með opnanlegu fagi.
Borðstofa: Samliggjandi og opin við stofu með aukinni loftæð. Fallegur hlaðinn hornveggur. 
Stofa: Opið inn í borðstofu. Aukin lofthæð. Afar bjart og tignarleg rými. 
Hol: Gengið í öll svefnherbergi úr holi. Einnig fallegur stigi niður á neðri hæð.
Svefnherbergi 1: Afar rúmgott með "walk in" fataskáp með skúffum, hillum og fatahengi. Er skv. teikningu 2 herbergi. Búið að fjarlægja millivegg og sameina í eitt stærra herbergi.
Svefnherbergi 2: Rúmgott. 
Svefnherbergi 3: Rúmgott.
Baðherbergi: Fallega uppgert með flísum á gólfi og á veggjum í sturtu. klósett, rúmgóð sturta ásamt fallegri innréttingu með skúffum, skáp og vask, stór spegill fyrir ofan vask. 

Kjallari, aðalíbúð.
Svefnherbergi 4: Rúmgott
Salerni: Klósett, vaskur og spegill.
Sturtuherbergi: Hliðiná salerni. Sturtuklefi.
Þvottahús: Mjög rúmgott og praktískt þvottaherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Gott skápapláss. Sér inngangur með kattarlúsgu inn í þvottahús. Flísar á gólfi.
Geymsla: Mjög rúmgóð geymsla.

Kjallari - Aukaíbúð um 63 fm - Sérinngangur - Góðar leigutekjur:
Stofa og borðstofa í opnu rými.  
Eldhús í opnu rými. Innrétting með efri skápum og neðri skúffum. Ísskápur, eldavél með helluborði og örbylgjuofn.
4 svefnherbergi: Rúmgóð, dúkur á gólfi.

Falleg og mikið uppgerð stór og rúmgóð sérhæð og kjallari með aukaíbúð. Frábær staðsetning á rólegum og fjölskylduvænum stað í gamla Vesturbænum með alla helstu verslun og þjónustu í göngufjarlægð. Skólar á öllum stigum í nágrenninu ásamt fjölbreyttu íþróttastarfi Reykjavíkurstórveldisins KR í Frostaskjóli.
.
Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6616021, tölvupóstur hreidar@fasteignamidlun.is.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
16/11/202183.450.000 kr.90.000.000 kr.207.9 m2432.900 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Langholtsvegur 53
Bílskúr
Langholtsvegur 53
104 Reykjavík
216.5 m2
Einbýlishús
836
752 þ.kr./m2
162.700.000 kr.
Skoða eignina Iðunnarbrunnur 2
Bílskúr
Opið hús:17. sept. kl 17:00-17:30
Iðunnarbrunnur 2
113 Reykjavík
229.2 m2
Parhús
624
718 þ.kr./m2
164.500.000 kr.
Skoða eignina Vættaborgir 46
Skoða eignina Vættaborgir 46
Vættaborgir 46
112 Reykjavík
223 m2
Parhús
524
708 þ.kr./m2
157.900.000 kr.
Skoða eignina Smyrilshlíð 7
Bílastæði
Skoða eignina Smyrilshlíð 7
Smyrilshlíð 7
102 Reykjavík
307.6 m2
Fjölbýlishús
32
487 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin