LIND fasteignasala kynnir bjarta og fallega tveggja herbergja íbúð á 2. hæð í snyrtilegu lyftuhúsi við Kirkjuvelli 12a í Hafnarfirði. Eldhús og stofa í opnu rými, rúmgott svefnherbergi. Sérgeymsla í sameign. Vel skipulögð eign í fjölskylduvænu hverfi þaðan sem stutt er í matvöruverslanir, íþróttamiðstöð, sundlaug, skóla og leikskóla. Húsið er byggt 2018.Áætlað fasteignamat 2026: 51.850.000 kr.Forstofa: Flísar á gólfi, fataskápur.
Eldhús: Ljós innrétting með dökkri borðplötu og góðu skápaplássi. Opnanlegur gluggi.
Stofa: Rúmgóð og björt, parket á gólfi, útgengi á vestursvalir.
Svefnherbergi: Parket á gólfi, fataskápar.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum, innrétting með handlaug, sturta, upphengt salerni, innrétting fyrir þvottavél, opnanlegur gluggi.
Sérgeymsla (3,6 fm) í sameign ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Lára Þyri Eggertsdóttir, löggiltur fasteignasali/B.A. í lögfræði í síma 899-3335 eða lara@fastlind.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 74.900.- með vsk.