Þriðjudagur 1. apríl
Fasteignaleitin
Skráð 29. mars 2025
Deila eign
Deila

Brekkuland 4A

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-270
339.6 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
178.350.000 kr.
Brunabótamat
192.550.000 kr.
Mynd af Svanþór Einarsson
Svanþór Einarsson
Byggt 1988
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2083168
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Suðurátt
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Kvöð / kvaðir
Eignin er skráð 339,6 m2, þar af einbýli 255,2 m2, bílskúr 42,2 m2 og vinnustofa 42,2 m2.
Afsal 441-E-004874/2022
Kvöð 411-I-010648/1989 KVÖÐ, VEGNA 3JA FASA RAFMAGNSHEIMTAUGAR
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir:  Sérlega glæsilegt 339,6 m2 einbýlishús á pöllum með bílskúr og stúdíóíbúð við Brekkuland 4A í Mosfellsbæ. Eignin er 255,2 m2 listilega hannað sjónsteypu einbýlishús á þremur pöllum ásamt stórum sérstæðum 42,2 fermetra bílskúr og 42,2 m2 vinnustofu (sem nýtt er í dag sem stúdíó svíta sem mögulegt er að nýta á ýmsan veg) fyrir ofan bílskúr sem veitir möguleika á góðum leigutekjum.
Staðsetningin er afar góð á stórri eignarlóð, rétt ofan við Álafosskvosina, með útsýni yfir sjálfan Álafossinn og með Varmárdalinn og Helgafell ásamt Lágafelli og Úlfarsfelli í suðvestur. Þarna eru fallegar gönguleiðir og önnur útivist í göngufæri.
Húsið er hannað og teiknað af Halldóri Gíslasyni arkitekt og hefur meðal innlendra og erlendra umfjallana prýtt forsíðu arkitektablaðsins. Við hönnun hússins lagði arkitektinn áherslu á að hið fagra útsýni og nánasta umhverfi nyti sín sem best, þ.e. yfir Álafosskvosina og Álafossinn. Kistufell í Esju er í raun frummynd í hönnun hússins. Húsið er steinsteypt úr sjónsteypu og var tekið tillit til sólargangs við hönnun og staðsetningu hússins á lóð. Þakbrún er úr ryðfríu aluzinki.


Nánari lýsing:
Aðalhæð:

Anddyri: Er vel opið með nýrri og einstaklega stórri álhurð í glæsilegri umgjörð (hiti í gólfum með þráðlausri stýringu í flestum gólfum eignarinnar) og sérsmíðuð millihurð á sveifluöxli frá anddyri í hol.
Baðherbergi: Með upphengt salerni og Duravit innréttingu og náttúrulegum steinvaski, veggir með steinefnasparsli.
Eldhús: Stórt með sérsmíðaða, glerklædda eldhúsinnréttingu frá Häcker með Gaggenau tækjum (bakara- og grillofn, gufuofn, hitaplata og tvöfaldur vínkælir), gott pláss fyrir borðstofuborð í stækkaðri borðstofu með glæsilegu útsýni. Í eldhúsinu er einstaklega stór eldunareyja úr hitaþolnu Dekton steinefni með borðaðstöðu og Bora spanhelluborði með gufugleypi. Horngluggi til vesturs og gluggar til norðurs, innfelld lýsing og kastarar í lofti. Veggir eru með steinefnasparsli.
Borðstofan: Var stækkuð nýlega út frá eldhúsi, með stórri rennihurð á móti kvöldsólinni, á terrassoslípaðan pall, undir borðstofunni er “tæknirými” þar sem hentugt upphitað geymslupláss er.
Þvottahús: Í nokkuð stóru þvottahúsi eru allar tengingar vegna gólf og húshita og gert ráð fyrir innréttingu með vaski. Lagnir eru fyrir þvottavél og þurrkara sem eru í núverandi innréttingu.
Stofa: Gengið er niður í stofu um nokkrar terrassoslípaðar steintröppur. Stofan er stór með mikilli lofthæð (5-7 metra), terrassoslípað steypt gólf með fallegum stállistum, miklir gluggar ná upp í loft til vesturs og útengi þaðan út á terrassoslípaða verönd. Gamall enskur arinn úr marmara er í stofu og er gólf tekið niður þar um 30 cm, sérgerðar sessur eru umhverfis arinn, innfelld lýsing í loftum (hiti í gólfum með þráðlausri stýringu).

Gengið beint upp tröppur og stiga frá holi, á millipalli er aðgengi í endarými þar sem gengið er um svalir tengdar stofu hússins. Á millipalli er unnið að stækkun og breytingu varðandi glugga til austurs við stiga. Á efri hæð er mikil lofthæð með innfelldum ljósum, í gólfi er hiti, gólfin eru flotuð og glæruð.

Efri hæð:
Svefnherbergi: Í svefnherbergi er staðsteypt rúm með sérhönnuðum höfðagafli. Í hönnun er tekið tillit staðsetningar og sólargangs. Þar er einnig útgengi út á stórar suðvestursvalir með glæsilegu útsýni yfir Varmá, Álafosskvosina og í vesturátt að sólarlagi. Nýlegir gluggar og svalahurð og svalir með pallaklæðningu.
Baðherbergi: Steinefnasparsl á veggjum, mjög stór og góð sturta, mikil lofthæð með innfelldri lýsingu og góð ofanbirta um þakglugga, upphengt salerni og lagnir fyrir frístandandi baðkar. Upphengd innrétting með náttúrulegum steinvaski.

Vinnustofa / stúdíó svíta: 
Íbúðin: Hefur öll verið tekin í gegn og endurnýjuð á glæsilegan hátt með fjölþættum og dimmanlegum ljósum. Komið er inn í anddyri/gang með sérsmíðuðum skáp sem inniheldur fatahengi og búr/tækjaskáp er snýr að ganginum og skilur að svefnrými þar sem í skápnum er fatageymsla og skúffur. Í baðherbergi er sturta, upphengt salerni, skáparými sem meðal annars innheldur þvottavél og þurrkara, hurð á baði er sérsmíðuð og sturtuklefi sérhannaður og stór náttúrulegur steinvaskur. Í alrými er eldhúsinnrétting frá Häcker með Liebherr ísskáp og frysti með klakavél, tvöfaldur Samsung bakaraofn, Samsung grill og örbylgjuofn, uppvottavél og tvöfaldur vínkælir. Í eldunareyju er Bora spanhelluborð með gufugleypi og mataraðstöðu. Í svefnrými er tvíbreytt rúm, útsýni er til norðurs og vesturs á móti kvöldsólinni, en utan við norðurhlið er gert ráð fyrir heitum potti og slökunaraðstöðu til að njóta himins og norðurljósa.
Bílskúrinn: Er rúmgóður, skráður 42,2 m2, með rafmagnihita og rennandi vatni. Bílskúr verður afhentur með nýrri bílskúrshurð.
Stór eignarlóð, 1.706,7 fermetrar, búið er að teikna drög að breytingum að lóð og eru ákveðnar framkvæmdir hafnar. Búið er að drena meðfram húsi og bílskúr steypa og terassoslípa plön og tröppur í lóðinni. Einnig er búið að gera gosbrunn með stuðlabergi sem er einstakur á sinn hátt, búið er að leggja lagnir fyrir vatn og rafmagn í garðinn.

Allar upplýsingar veitir Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
08/05/201777.950.000 kr.77.000.000 kr.339.6 m2226.737 kr.
11/01/200746.295.000 kr.60.122.000 kr.339.6 m2177.037 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Byggt 1988
42.2 m2
Fasteignanúmer
2083168
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
19.500.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Byggt 1988
42.2 m2
Fasteignanúmer
2083168
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
25.750.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
GötuheitiPóstnr.m2Verð
270
321.8
220
270
367.6
189

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Leirvogstunga 33
Bílskúr
Skoða eignina Leirvogstunga 33
Leirvogstunga 33
270 Mosfellsbær
321.8 m2
Einbýlishús
644
684 þ.kr./m2
220.000.000 kr.
Skoða eignina Ásholt 3
Bílskúr
Skoða eignina Ásholt 3
Ásholt 3
270 Mosfellsbær
367.6 m2
Einbýlishús
734
514 þ.kr./m2
189.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin