Andri Freyr Halldórsson lgfs & Lind kynna til sölu:
Vel staðsetta & rúmgóða 105.9 fm 3ja herbergja íbúð á 2.hæð í lyftuhúsi á þessum frábæra stað í Krikahverfi.
Íbúðarrými er 93.2 fm og sérgeymsla 12.7 fm. 11. fm svalir með stórkostlegu útsýni.
Skráð stærð eignar skv. FMR er 105.9 fm. Íbúðin er merkt 02-06.
Nánari upplýsingar veita:
Andri Freyr Halldórsson lgfs // 762-6162 // ANDRI@FASTLIND.IS
*Frábær staðsetning í Mosfellsbæ.
*Svalir með stórkostlegu útsýni.
*Rafhleðsla sem tilheyrir eigninni.
*Granítstein á borðum.
*Samþykkt er fyrir svalokun.
Eignin skiptist í:
Andyri, forstofugang, stofu/borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús með stæði fyrir þvottavél og þurrkara, sérgeymslu í sameign.
Sameiginleg hjóla/vagnageymsla á jarðhæð.
Nánari lýsing eignar:
Andyri: með parketi á gólfi og góðum fataskáp.
Eldhús: með vönduðum innréttingum frá AXIS með eyju, granít steinborðplötu og tengt fyrir uppþvottavél og stæði fyrir ísskáp. Ofn í vinnu hæð ásamt combi ofni.
Stofa & borðstofa: er opið og bjart rými með parketi á gólfi.
-Útgengt er úr stofu út á 11 fm rúmgóðar svalir með stórkostlegu útsýni.
Baðherbergi: er flísalagt í hólf og gólf. Útbúið baðkari með sturtu aðstöðu, vandaðri vaskinnréttingu með skápum og skúffum, handklæðaofni og upphengdu salerni.
Hjónaherbergi: rúmgott með parketi á gólfi og rúmgóðum fataskápum.
Svefnherbergi 2: með parketi á gólfi og fataskáp.
Geymsla: 12.7 fm, staðsett í sameign.
Litlikriki 2 er á eftirsóttum stað í fjölskylduvænu og rólegu íbúðahverfi í Mosfellsbæ. Umhverfið einkennist af fallegri náttúru, opnum svæðum og góðum göngu- og hjólaleiðum sem liggja um hverfið og nærliggjandi útivistarsvæði. Stutt er í fjölbreytt leiksvæði og græn svæði sem skapa notalegt og barnvænt umhverfi. Í næsta nágrenni er öll helsta þjónusta, svo sem leik- og grunnskólar, íþróttaaðstaða, sundlaug, heilsugæsla og verslanir. Einnig er stutt í miðbæ Mosfellsbæjar og aðra daglega þjónustu sem gerir staðsetninguna afar þægilega fyrir fjölskyldur jafnt sem einstaklinga. Góð tenging er við helstu stofnbrautir og almenningssamgöngur sem tryggir greiðar samgöngur til Reykjavíkur og annarra nærliggjandi svæða
Nánari upplýsingar veita:
Andri Freyr Halldórsson lgfs // 762-6162 // ANDRI@FASTLIND.IS
Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar.
Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 10 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma & SÝN.
Kostnaður kaupanda vegna kaupa: Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga er 0,8% og lögaðila 1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum, oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.700 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.