LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir virkilega vel staðsett 338,6 m2 endaraðhús sem er skipt upp í tvær góðar íbúðir með sérinngangi við Hryggjarsel 5 í Seljahverfinu í Breiðholti. Eigninni fylgir stór tvöfaldur bílskúr. Birt stærð samkv. Þjóðskrá Íslands er 338,6 m2. Skipting eignarinnar er eftirfarandi: Íbúð á jarðhæð er 119,2 m2, 3-4 herbergja íbúð sem er tilvalin til útleigu. Íbúð á miðhæð 96 m2 og efsta hæð 68,8 m2 ásamt bílskúr 54,6 m2
Helstu endurbætur á íbúð á efri hæð
*Gestasalerni endurnýjað 2017*Eldhús endurnýjað árið 2018
*Korkur lagður á miðhæð yfir dúk árið 2018
*Búr uppsett 2018
*Neysluvatnslagnir endurnýjaðar 2018
*Rafmagn í eldhúsi og baðherbergi á efri hæð endurnýjað 2018
*Veggir og loft máluð 2019 ásamt þvi að innihurðar voru sprautulakkaðar
*Baðherbergi/þvottahús endurnýjað 2022
*Skipt um þakskegg allan hringinn 2024
* Nýr gluggi í stigahúsi 2024 Helstu endurbætur á íbúð á jarðhæð.
*Eldhús endurnýjað 2017
*Baðherbergið endurnýjað 2017
*Neysluvatnslagnir endurnýjaðar 2017
*Ný rafmangstafla fyrir eldhús ( sér fyrir þessa íbúð )
*Ofnar endurnýjaðir að hluta 2017
*Gegnheilt parket pússað 2019 Íbúð á efri hæð.Gengið er inn á miðhæð hússins inn í stóran óupphitaðan sólskála sem er ekki inni í fermetrafjölda eignarinnar, þaðan inn í flísalagða forstofu, gestasalerni, eldhús , búr og stofur.
Forstofan er flísalögð með fatahengi.
Gestasalerni er flísalagt með salerni og handlaug.
Eldhúsið er einstaklega rúmgott með fallegri innréttingu frá HTH með góðu skúffu- og skápaplássi, ofnar í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél og gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp í innréttingu , span helluborð.Rúmgóður borðkrókur, korkparket. Tæki frá Ormsson.
Búr með korkparketi á gólfi og góðum hirslum, opnanlegur gluggi.
Borðstofa og stofa eru stórar og bjartar með korkparketi á gólfi.
Efri hæð skiptist í hol, fjögur svefnherbergi, baðherbergi og svalir.Rúmgott hol með dúk á gólfi
Baðherbergi/þvottahús er flísalagt með góðri innréttingu í kringum þvottavél og þurrkara, falleg baðinnrétting með vaski ofan á , walk-in sturta , upphengt salerni, hiti í gólfi og handklæðaofn.
Hjónaherbergi er með dúk á gólfi og fataskáp, útgengt út á svalir.
Barnaherbergin eru þrjú með dúk á gólfi.
Íbúð á jarðhæð.Forstofa, 3 svefnherbergi (tvo og eitt sem er gluggalaust sem stúkað er úr stofu), eldhús og stofa í sameiginlegu rými, salerni og þvotthús/geymsla. Garður og sérinngangur.Forstofa með með flísum og rúmgóðum skáp.
Gengið er inni í eitt svefnherbergi með dúk á gólfi úr forstofu.
Stórt svefnherbergi með tveimur gluggum og viðarparketi.
Þriðja herbergið sem stúkað var úr stofu með viðarparketi.
Stofan parketlögð en eldhús með flísum. Snyrtileg innrétting í eldhúsi með helluborði í eyju. Ísskápur innbyggður í innréttingu, ofn í vinnuhæð og stór vaskur, innbyggð uppþvottavél.
Flísalagt baðherbergi með baðkari, sturtu, upphengdu salerni og vaski á rúmgóðri innréttingu.
Úr baðherbergi er gengið inn í lagnaherbergi sem þjónar líka tilgangi þvottahúss og geymslu.
Bílskúrinn er skráður 54.6 m2 og er með tveimur innkeyrsluhurðum, hiti í gólfi, veggir og loft nýlega einangrað og klætt. Undir bílskúrnum er annað eins pláss þar sem veggir eru nýlega einangraðir og gólf málað. Nýtist einstaklega vel sem geymsla
Hellulögð rúmgóð bílastæði eru fyrir framan með snjóbræðslu ásamt þvi að snjóbræðsla er í gangstétt. Örstutt er í græn svæði, eignin er á frábærum friðsælum og fjölskylduvænum stað þar sem að stutt er í skóla og leikskóla og alla aðra almenna þjónustu. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is