Guðný Ösp, lgf., og fasteignasalan TORG kynnir fallega fjögurra herbergja íbúð við Eskiás 3d
Umrædd íbúð er skv. fasteignayfirliti HMS samtals skráð 113,7 m2.
Íbúðin er vel staðsett á suð-vestur horni á 2. hæð í tveggja hæða húsi, með sér inngang. Íbúðin er með aukinni lofthæð, 2,7 m og er m.a., hönnuð með því markmiði að birta eigi greiða leið inní íbúðina. Komið er inn í forstofu á 1. hæð og gengið upp stiga á 2. hæð, íbúðin er með nýlegu Quick-step harðparketi úr Harðviðarval og sérímældum gluggatjöldum frá Álnabæ. Alrými íbúðarinnar er bjart og opið með nægu borðplássi í borðstofu frá stofu er útgengt út á skjólgóðar svalir sem snúa í suður.
Nánari lýsing:
Forstofa: flísar á gólfi, fataskápur, gengið er upp teppalagðan stiga upp á aðalhæð íbúðarinnar, en undir stiga er geymslurými.
Eldhús: parket á gólfi, í eldhúsi er veggföst eyja með góðu borðplássi. Allar innréttingar eru nýlegar og eru úr GKS.
Stofa-og borðstofa: parket á gólfi, rúmgóð og björt stofa með útgengi út á skjólgóðar svalir sem snúa í suður.
Herbergi I: parket á gólfi, fataskápur var tekin niður, en hann er til.
Herbergi II: parket á gólfi og fataskápur.
Hjónaherbergi III: parket á gólfi, rúmgóðir fataskápar. pláss fyrir skrifborð inn á hjónaherbergi.
Baðherbergi: flísar á gólfi og veggjum, "walk-inn sturta", upphengt salerni, innrétting og speglaskápur.
Pláss fyrir þvottavél og þurrkara inn á baðherbergi.
Geymsla: staðsett innan íbúðar, samtals skráð 10 m2 með geymslurými í forstofu undir stiga.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er staðsett á 1. hæð í sameign hússins.
Bílastæði eru staðsett fyrir framan inngang íbúðarinnar, þá eru líka sameiginleg rafhleðslustæði fjær á lóðinni. Aðkoma að húsinu er snyrtileg og aðgengi að innigarði sem er skjólsæll. Eignin er staðsett miðsvæðis í Garðabæ, nærri skóla- og leikskóla og í göngufæri við sundlaug Garðabæjar og verslunarkjarna á Garðatorgi.
Nánari upplýsingar veitir: Guðný Ösp, lgf. s. 665-8909 eða gudny@fstorg.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign: Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila en 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða.
Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali. Umsýslugjald fasteignasölu, samkvæmt gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.