Miklaborg kynnir: Vel skipulagt 276,9 fermetra parhús á tveimur hæðum með innbyggðum tvöföldum bílskúr á eftirsóttum stað að Ásbúð 89, 210 Garðabæ (tvö fastanúmer). Eignin hefur fengið gott viðhald og er mikið endurnýjuð. Húsið stendur á fallegri og rúmgóðri lóð, að framan er steypt plan og innkeyrsla með hitalögnum undir og á baklóð er stór viðarverönd og gróðursæll garður í suður. Góð staðsetning þar sem stutt er í Hofstaðaskóla, Fjölbrautarskóla Garðabæjar, leikskóla, verslun og þjónustu.
Fasteignamat eignarinnar er kr. 188.000.000.
Skráning eignarinnar skv. Fasteignaskrá er eftirfarandi:
Aðal íbúðarrými er skráð samtals 204,4 fm. þar af er innbyggður, tvöfaldur 36,8 fm. bílskúr, aukaíbúð er skráð 72,5 fm. Samtals stærð 276,9 fm. Í dag er húsið notað sem ein heild þar sem aukaíbúðin hefur verið opnuð að aðal íbúðarrými. Auðvelt er að færa aukaíbúð aftur í fyrra skipulag.
***Eignin verður ekki sýnd fyrir opið hús***
Nánari lýsing - Neðri hæð
Gengið er inn um sérinngang inn í flísalagða forstofu. Gestasnyrting er inn af forstofu. Rými sem áður var lokað af sem aukaíbúð með sérinngangi hefur verið opnað og tekið snyrtilega inní aðalíbúðarými og skiptist í tvö rúmgóð svefnherbergi, alrými, eldhús, baðherbergi og tvær geymslur. Eldhúsinnrétting er bæði með eldavél og ísskáp. Baðherbergi er með flísum á gólfi, sturtu, salerni og handlaug með skúffum þar undir. Auðvelt er loka af aukaíbúð og færa neðri hæð aftur í fyrra skipulag.
Nánari lýsing - Efri hæð
Gengið er upp steyptan og flísalagðan stiga upp á efri hæð og er þakgluggi yfir stiga sem gefur góða birtu inn. Komið er upp í rúmgott og bjart alrými með flísum á gólfi, eldhúsi og borðstofu. Hátt er til lofts og innfelld lýsing í lofti. Eldhúsinnrétting er sérsmíði frá Brúnás með góðu skápa- og vinnuplássi. Frá borðstofu er gengið inn í samliggjandi stofur. Stofurnar tvær eru bjartar og rúmgóðar, parketlagðar með útgengi út í nýlegan sólskála sem er með flísum á gólfi. Rennihurð er frá sólskóla út á viðarverönd og þaðan út á lóð. Á hæðinni eru þrjú svefnherbergi, tvö rúmgóð barnaherbergi og hjónaherbergi með útgengi á út á svalir. Baðherbergi er með flísar á gólfi, veggjum og inn í sturtu. Upphengt salerni og handlaug. Hvít baðinnrétting með graníti á borðum, gott skúffupláss og sér skápar, þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara.
Bílskúr, er tvöfaldur og með tveimur innkeyrsluhurðum. Gluggar, niðurföll í gólfi og rennandi heitt og kalt vatn. Gert er ráð fyrir að hægt sé að vera með tvær hleðslustöðvar fyrir rafbíla á vegg fyrir framan bílskúr. Útigeymsla/köld geymsla er undir stiga frá svölum niður á lóð.
Viðhald að utan
Þakjárn og þakpappi voru endurnýjuð árið 2010. Eignin var múrviðgerð og máluð að utan árið 2022.
Nánari upplýsingar veitir
Stefán Jóhann Stefánsson löggiltur fasteignasali í síma 659-2634 eða stefan@miklaborg.is
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 29/06/2023 | 55.300.000 kr. | 154.900.000 kr. | 276.9 m2 | 559.407 kr. | Nei |
| 11/10/2022 | 41.600.000 kr. | 150.000.000 kr. | 276.9 m2 | 541.711 kr. | Nei |
| 14/12/2007 | 15.790.000 kr. | 15.000.000 kr. | 72.5 m2 | 206.896 kr. | Já |
| 15/10/2007 | 15.790.000 kr. | 15.000.000 kr. | 72.5 m2 | 206.896 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
310 | 60,4 | 51 | ||
310 | 60 | 51 | ||
210 | 89,2 | 80 | ||
310 | 60,4 | 49,8 | ||
230 | 87,6 | 52,9 | ||
210 | 91,2 | Tilboð |