Föstudagur 31. júlí
Fasteignaleitin
Skráð 31. júlí 2026

Hlíð 5A

SumarhúsHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær/Kjós-276
30.8 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
23.900.000 kr.
Fermetraverð
775.974 kr./m2
Brunabótamat
16.100.000 kr.
Byggt 1995
Pallur
Fasteignanúmer
22208631
Húsgerð
Sumarhús

Krúttlegur sumarbústaður í Kjósinni!
Heimili Fasteignasala og Anna Sigurðardóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu einstaklega sjarmerandi og notalegan sumarbústað á ævintýralegum stað í Eilífsdal í Kjósarhreppi nánar tiltekið Hlíð 5A. Lóðin sem er 4357 fm leigulóð er vel staðsett á kyrrlátum og gróðursælum stað í afgirtu sumarhúsahverfi með öryggishliði. Öflugt sumarhúsafélag er á svæðinu og töluvert af fólki sem hefur þar fast aðsetur allt árið um kring.

 
Nánari lýsing:
Í Eilífsdal í landi Meðalfells í Kjósarhreppi er að finna afar sjarmerandi lítinn sumarbústað sem stendur neðan við götu og var reistur árið 1995, byggt var við hann árið 2020 ca 6 fm herbergi og eru þeir fm óskráðir. Birt stærð er 24,8 fm en með viðbyggingu er hann samtals 30,8 fm. Bústaðurinn stendur á gróinni 4357 fm leigulóð sem er afar skjólsæl með fallegum trjágróðri og stórkostlegu útsýni.  Að innan er sumarbústaðurinn afar notalegur með stórum gluggum sem hleypa mikilli birtu inn. Gengið er inn af  timburverönd í bjart og fallegt alrými sem samanstendur af stofu og eldhúskróki, úr alrými er gengið inn í svefnherbergið sem er með glugga og litlum fataskáp, úr alrými er stigi upp á svefnloftið þar sem hitakútur er staðsettur. í baðherberginu er sturtuklefi, wc og vaskur. Rafmagnskynding er í húsinu en hitaveita er komin í hverfið. Allir sumarhúsaeigendur á svæðinu eru meðlimir í Sumarbústaðafélaginu Valshamar.   Gámasvæði með sorpflokkun er við öryggishliðið. 

Hér er um að ræða yndislegan sælureit á fallegum og gróðursælum stað í aðeins um 30 mínútna akstursfjarlægð frá Mosfellsbæ.  Skemmtilegt leiksvæði er innan svæðisins, og fjölbreytt aðstaða til útivistar m.a. klettaklifur í Valshamar og fallegar gönguleiðir.
 
Gjöld: 
Fasteignagjöld 2026 eru 101.380 kr.
Brunatrygging 2026 er  kr. 22.989 kr.
Lóðarleiga 2026 er 156.844.
Árgjald í Sumarhúsafélagið Valshamar er 50.000 kr.


Allar frekari upplýsingar veitir Anna Sigurðardóttir löggiltur fasteignasali sími 898-2017 netfang  as@heimili.is

Til fróðleiks!

Valshamar í Eilífsdal er lítill klettastapi í vesturhlíðum Þórnýjartinds. Þar hefur verið klifrað síðan 1978 en árið 1987 litu fyrstu boltuðu leiðirnar dagsins ljós. Eru það fyrstu klifurleiðirnar á Íslandi sem voru boltaðar. Valshamar er trúlega mest nýttur allra klifursvæða landsins og þar er hægt að klifra bæði tæknilega erfiðar vel boltaðar leiðir og svo auðveldari leiðir tryggðar með hefðbundnum aðgerðum. Bergið er 15-20m hátt en nær sjaldnast lóðréttu. Og eitt sem ekki má gleyma. Sökum þess hve hamarinn er lítill liggja klifurleiðirnar mjög þétt.




 
 


Heimili fasteignasala og Landmark fasteignamiðlun eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteigasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.  

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Heimili fasteignasala
http://www.heimili.is

Myndir (29)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Meðalfellsvegur 22
Meðalfellsvegur 22
276 Mosfellsbær
40 m2
Sumarhús
312
675 þ.kr./m2
27.000.000 kr.
Skoða eignina Ölver 13
Á einni hæð
Hleðslustöð
Skoða eignina Ölver 13
Ölver 13
301 Akranes
171.7 m2
Sumarhús
413
570 þ.kr./m2
97.900.000 kr.
Skoða eignina Bláskógar 4
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Bláskógar 4
Bláskógar 4
301 Akranes
67 m2
Sumarhús
414
596 þ.kr./m2
39.900.000 kr.
Skoða eignina Mosabraut 8
Skoða eignina Mosabraut 8
Mosabraut 8
851 Hella
26.8 m2
Sumarhús
1
672 þ.kr./m2
18.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin