Miðvikudagur 4. júní
Fasteignaleitin
Opið hús:05. júní kl 17:00-17:30
Skráð 2. júní 2025
Deila eign
Deila

Hátún 4

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
73 m2
3 Herb.
Verð
61.900.000 kr.
Fermetraverð
847.945 kr./m2
Fasteignamat
57.450.000 kr.
Brunabótamat
35.050.000 kr.
Mynd af Árni Helgason
Árni Helgason
Löggiltur Fasteignasali
Byggt 1960
Lyfta
Garður
Útsýni
Fasteignanúmer
2009974
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
N-svalir
Upphitun
Hitaveita
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Á húsfundi í maí 2024 kom fram að það þyrfti að steypa og filta tröppur bakvið húsið. Einnig er stjórn að leita tilboða í djúpgáma. Sjá húsfundargerð 13.05.2024. Á húsfundi í nóvember 2024 kom fram að það þyrfti að laga nýja glugga á austurhlið. Áætlað að ganga á verktryggingu verktaka til að láta laga þá. Einnig kom fram að það þyrfti að laga þakniðurfallsrör, skipta um þvottavél í þvottahúsi og laga lagnagrind.
Á aðalfundi 2025 kom fram að það þarf að skipta um glugga á vestur og suðurhlið hússins og stjórn ætli að vinna með það mál. Einnig kom fram að sameign þarfnast viðhalds, s.s. teppi anddyri, lyfta gólfefni o.fl. Fram kom að nokkuð er um að steypa sé að brotna af svölum. Fram kom að það sé komið tilboð í rafbílahleðslu. Sjá aðalfundargerð 07.05.2025
Gallar
Huga þarf að gluggum á vesturhlið en ekki hefur verrið skipt um þá nýlega en málið er í farvegi hjá húsfélagi.
Kvöð / kvaðir
Á lóðinni eru kvaðir um leiksvæði barna, kvöð um umferð og bílastæði og kvöð um leiðslur Orkuveitunnar.
Domusnova fasteignasala hefur fengið í einkasölu góða 3ja herbergja íbúð með svölum á 3ju hæð að Hátúni 4. Íbúðin er með eldhúsi og stofu í sameiginlegu rými og tveimur herbergjum, auk baðherbergis og geymslu á hæðinni. Stutt er í alla þjónustu í miðbænum og Nóatúni, íþróttasvæði Laugardalsins innan seilingar. Stutt er í skóla og leikskóla og góða aðkoma að stofnbrautum, Sæbraut og Miklubraut. Næsta árs fasteignamat er kr. 62.750.000.

Eldhús og stofa eru í einu rými með flísum á gólfi, ágæt eldhúsinnrétting. Útgengt er úr stofu á svalir sem snúa í norðvestur.
Baðherbergið er fremur lítið, sturtuklefi.
Hol er með flísum á gólfi og er lítill geymsluskápur þar.
Tvö herbergi, bæði með góðu skápaplássi.
Ofnar eru upprunalegir pottofnar. Skipt hefur verið um glugga á austurhlið en ekki norður og vesturhlið. 
Í sameign er sameiginlegt þvottahús  og þurrkherbergi með þvottavél og þurrkara í eigu húsfélagsins með sjáfsalafyrirkomulagi. Hjóla- og vagnageymsla auk lítillar sérgeymslu í sameign merkt 2A.

Um er að ræða dánarbú og eru væntanlegir kaupendur hvattir til að skoða eignina vel áður en tilboð er gert þar sem erfingjar hafa takmarkaðar upplýsingar um hana.
Smellið hér til að fá söluyfirlit

Nánari upplýsingar veita:
Árni Helgason löggiltur fasteignasali / s.663 4290 / arni@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Brautarholt 4
Opið hús:07. júní kl 12:30-13:00
Skoða eignina Brautarholt 4
Brautarholt 4
105 Reykjavík
58.9 m2
Fjölbýlishús
211
1085 þ.kr./m2
63.900.000 kr.
Skoða eignina Skaftahlíð 10
Skoða eignina Skaftahlíð 10
Skaftahlíð 10
105 Reykjavík
64 m2
Fjölbýlishús
211
936 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Borgartún 24 305
Opið hús:04. júní kl 11:45-12:00
Borgartún 24 305
105 Reykjavík
57.1 m2
Fjölbýlishús
211
1084 þ.kr./m2
61.900.000 kr.
Skoða eignina Borgartún 24 303
Opið hús:04. júní kl 11:45-12:00
Borgartún 24 303
105 Reykjavík
60.8 m2
Fjölbýlishús
211
1015 þ.kr./m2
61.700.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin