Stórglæsileg íbúð í Löngulínu 14, 210 Garðarbæ. Íbúð í fremstu línu með óhindruðu glæsilegu sjávarútsýni.Fasteignaland kynnir: Íbúð á efstu hæð við Löngulínu 14 í Garðarbæ. Um er ræða 149,5 fm íbúð á þriðjuhæð í litlu fjölbýli ásamt stæði í bílageymslu. Eignin er með mikillri lofthæð að hluta til og glæsilegu sjávarútsýni. Í þessari eign eru tvennar svalir. Granit er í sólbekkjum, eldhúsborðplötum og á baðinnréttingu. Þar sem mikil lofthæð er milli stofu og eldhúss er möguleiki að bæta við ca. 15 fm millilofti.
Glæsileg eign og vel um gengin í fremstu línu við sjávarsíðuna þar sem stutt er í skóla, leikskóla, sundlaug, íþróttir og aðra þjónustu.Lýsing á eign: Hol með plankaparketi og góðu skápaplássi.
Tvö herbergi með plankaparketi á gólfi og góðu skápaplássi.
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf með fallegri viðarinnréttingu, sturtuklefa og baðkari.
Stofa með plankaparketi á gólfi og útgengi út á suður svalir.
Eldhús er með fallegri viðarainnréttingu með graniti á borðplötumog vönduðum tækjum.
Borðstofa með plankaparketi á gólfi og útgengi út á norður svalir.
Þvottahús með flísum á gólfi og fallegri hvítri innréttingu.
Í sameign á jarðhæð hússins er sér 12,4 fm geymsla ásamt hjóla-og vagnageymslu.
Stæði í bílageymslu fylgir eigninni.
Upplýsingar gefa:Heimir Eðvarðsson, löggiltur fasteignasali s. 893-1485, netfang: heimir@fasteignaland.is