Berglind Hólm lgfs. og RE/MAX kynna: Sérlega rúmgóð 3ja herbergja íbúð með sérinngangi á jarðhæð, verönd og stæði í lokaðri bílageymslu á frábærum stað við Baugakór í Kórahverfi Kópavogs. Íbúðin er með góðum innréttingum og fallegu harðparketi á gólfi. Tvö rúmgóð svefnherbergi eru í íbúðinni, baðherbergi bæði með sturtu og baðkari, sér þvottaherbergi og stórt alrými með stofu og góðu eldhúsi, sér merkt stæði í bílakjallara og góð geymsla. Út frá stofu er gengið út á 25-30 m2 suður sérafnotaflöt sem girt er af með skjólveggjum. Grunnskóli, tveir leikskólar og tvær verslanir eru í stuttu göngufæri frá íbúðinni.
Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is
Nánari lýsing eignar: Gengið er að íbúðinni beint af bílastæðunum fyrir framan húsið og aðgengi að henni því sérlega gott. Sérinngangur er beint inn í íbúðina og því þarf ekki að fara í gegnum stigahúsið til að komast að henni. Farið er inn í stigahúsið til að fara niður að geymslugangi og bílakjallara. Lyfta er í stigahúsinu.
Forstofa: Komið er inn i forstofu með flísum á gólfi og góðum eikar fataskáp sem nær upp í loft. Eikar hurð með gleri skilur á milli forstofu og alrýmis. Gengið er inn í þvottaherbergið frá forstofunni.
Alrými: Setustofa, borðstofa, eldhús
Setustofa + borðstofa: Þegar komið er inn úr forstofu er komið inn í gott hol og þaðan er svo gengið inn í stofu rýmið. Stofan og borðstofan eru samliggjandi í mjög rúmgóðu rými. Fallegt harðparket er á gólfi á holinu og inn í stofurnar og eldhúsið. Gengið er út á um 25-30 m2 sérafnotaflöt frá stofunni. Sérafnotareiturinn er afgirtur, hellur og gras er á gólffleti.
Eldhús: Innrétting í eldhúsi er stór á tvo veggi í vinkil með efri og neðri skápum. Innréttingin er úr eik og nær upp í loft með dökkum flísum á milli efri og neðri skápa. Mikið skápapláss og gott vinnupláss.
Baðherbergi: Baðherbergið er rúmgott með fallegum ljósum flísum á gólfi og á veggjum. Bæði er baðkar og sér sturta í rýminu. Góð eikar innrétting er undir vaskaborði og einnig á vegg við hlið spegils. Handklæðaofn er á vegg við baðkarið.
Hol: Á milli hjónaherbergis og baðherbergis er hol sem hægt er að nýta sem til dæmis vinnuhol/skrifstofuhol.
2 x svefnherbergi: Svefnherbergin eru tvö í eigninni. Bæði herbergin eru mjög rúmgóð með fallegu harðparketi á gólfum og góðum eikar fataskápum sem ná upp í loft. Herbergin eru 12,3 m2 og 14,3 m2.
Þvottaherbergi: Sér þvottaherbergi með glugga er innan íbúðar, inn af forstofunni. Flísar eru á gólfi og góð innrétting er á vegg.
Geymsla: Í sameign er sér geymsla sem fylgir íbúðinni, 7,1 m2.
Bílageymsla: Gott stæði fylgir íbúðinni í lokuðum bílakjallara. stæðið er rétt við innganginn inn í húsið.
Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is