SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEG NÝ PARHÚS Í FALLEGUM SPÆNSKUM BÆ Á COSTA BLANCA*
*GÖNGUFÆRI VIÐ ÞJÓNUSTU OG AÐEINS 10-15 MÍNÚTNA AKSTUR Á STRÖNDINA*
Falleg og nútímaleg nýbyggð parhús í Daya Nueva, notalegum spænskum bæ á Costa Blanca þar sem kyrrð, lífsgæði og góð staðsetning eru aðal málið. Húsin eru einstaklega vel hönnuð með björtum opnum rýmum, stórum veröndum og einkabílastæði og henta jafnt sem heilsársbúseta, sumarhús eða fjárfesting.
ALLAR UPPLÝSINGAR VEITA:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. 📞 +354 893 2495. ✉️ adalheidur@spanareignir.is.
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali. 📞 +34 615 112 869. ✉️ berta@spanareignir.is.
FRÁBÆRT SKIPULAGHúsin eru hönnuð með áherslu á nútímalegan lífsstíl þar sem stofa, borðstofa og eldhús mynda bjart og rúmgott opið alrými með góðri tengingu við útisvæðin.
Eignirnar bjóða upp á:
3 rúmgóð svefnherbergi
2 glæsileg baðherbergi
Bjarta stofu og borðstofu í opnu rými
Nútímalegt eldhús
Stórar og sólríkar verandir
Einkabílastæði á lóð
Möguleika á einkasundlaug
Vandaða og fallega hönnun
ÚTISVÆÐI OG LÍFSSTÍLLHér nýtur þú hins sanna Miðjarðarhafslífs með rúmgóðum útisvæðum sem henta fullkomlega fyrir samveru með fjölskyldu og vinum.
Rúmgóðar verandir með góðri sól
Einkabílastæði
Möguleiki á einkasundlaug
Göngufæri í verslanir, veitingastaði og aðra þjónustu
Aðeins um 10-15 mínútna akstur að fallegum sandströndum Guardamar del Segura
Um 30 mínútna akstur frá Alicante-flugvelli
EFTIRSÓTT STAÐSETNING
Daya Nueva er heillandi spænskur bær sem er þekktur fyrir rólegt andrúmsloft, vinalegt samfélag og hefðbundinn spænskan sjarma. Þar er öll helsta þjónusta innan seilingar á sama tíma og stutt er í golfvelli, strendur og stærri bæi á Costa Blanca.
Þetta er fullkominn staður fyrir þá sem vilja njóta ekta spænsks lífsstíls í fallegu og afslöppuðu umhverfi en hafa jafnframt greiðan aðgang að allri nútímaþjónustu.VERÐ3 svefnherbergi – 2 baðherbergi
Verð frá 399.900 evrum (ISK 57.900.000 miðað við gengi ein evra=145ISK) + kostnaður við kaupin.
ÖRUGG KAUP OG REYNSLA
Við höfum selt fasteignir á Spáni frá árinu 2001 og bjóðum íslenskum kaupendum upp á örugga og faglega þjónustu frá upphafi til enda.✔ Löggiltur íslenskur fasteignasali með full réttindi bæð á Íslandi og Spáni
✔ Aðstoð við fjármögnun hjá spænskum bönkum
✔ Aðstoð við skoðunarferðir
✔ Leiðsögn í gegnum allt kaupferlið
SKOÐUNARFERÐIR:Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.isKOSTNAÐUR VIÐ KAUP10% IVA (spænskur virðisaukaskattur)
Um 3% annar kostnaður vegna kaupa
Samtals um 13%
EIGINLEIKAR: Nýbygging, 3 svefnherbergi, 2 baðherbergi, Einkabílastæði, Rúmgóðar verandir, Möguleiki á einkasundlaug, Göngufæri við þjónustu, Stutt í strönd, Vönduð hönnun,
SVÆÐI: Costa Blanca, Daya Nueva, Alicante, Spánn,