Fimmtudagur 12. nóvember
Fasteignaleitin
Skráð 11. sept. 2024

Hótel Dalvík

Atvinnuhúsn.Norðurland/Dalvík-620
1,314.5 m2
42 Herb.
39 Svefnh.
33 Baðherb.
Verð
420.000.000 kr.
Fermetraverð
319.513 kr./m2
Fasteignamat
188.830.000 kr.
Brunabótamat
703.900.000 kr.
Byggt 1973
Jarðhæð af 3
Garður
Pallur
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2155203
Landnúmer
151701
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Ekki vitað
Þak
Ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Viðarpallur til suðurs
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
FS fasteignir – 571-9992

Hótel Dalvík, 620 Dalvík
FS fasteignir kynnir til sölu Hótel Dalvík við Skíðabraut 18 í hjarta Dalvíkur.
Um er að ræða notalegt hótel í afslappandi umhverfi á Norðurlandi í námundann við heimskautsbauginn. Frá Hótelinu er gott útsýni yfir Tröllaskaga.
Á hótelinu eru samtals 39 herbergi með gistipláss fyrir allt að 114 manns, bjart móttökurými með rúmgóðri setustofu með sjónvarpi og bar, stórum matsal með gluggum og sólpall til suðurs sem horfa inn Svarfaðardal, salurinn er tilvalinn fyrir ráðstefnur eða aðra viðburði.

Dalvík er sannkölluð náttúruperla með fjölda gönguleiða, fjölbreytt fuglalíf, glæsilega sundlaug, byggðasafnið Hvol, einstakt skíðasvæði, hvalaskoðun, golfvöll í næsta nágrenni og svo mætti lengi telja.

Nánari lýsing eignar:
Móttaka: Gengið er inn í móttöku hótelsins austan megin, þar er skrifstofa, setustofa, móttökuborð og bar.
Matsalur: Er inn af móttöku, rúmgóður salur með stórum gluggum til suðurs, inn af matsal er eldhús með gaseldavél, bakarofn, kælir og atvinnu uppþvottavél.
Norðurálma: Er inn af móttöku, þar er teppi á gólfum og stigi á milli hæða.
   - Neðsta hæð: Þar eru svefnsalir með sameiginlegu baðherbergi, setustofa með borðum, sófum og sjónvarpi, sameiginlegar 4 sturtur og 4 salerni. Þar er einnig starfsmannaaðstaða með fjórum herbergjum, snyrtingu og eldunaraðstaða. Tvær geymslur eru í kjallara.
      - Gistirými: Eitt herbergi með sér baðherbergi og sex svefnsalir fyrir 4-5 manns með sameiginlegu baðherbergi.
      - Setustofa: Sameiginleg setustofa með borðum, sófum og stóru sjónvarpi.
      - Starfsmannaaðstaða: Fjögur herbergi fyrir starfsmenn, setustofa, snyrting og eldunaraðstaða.
      - Geymslur og þvottahús: Tvær geymslur eru í kjallara ásamt þvottahúsi með stórri iðnaðarþvottavél.
   - Fyrsta hæð: Þar eru tólf 2-3ja manna herbergi með sér baðherbergjum.
   - Önnur hæð: Er með tólf 2ja manna herbergi með sér baðherbergjum og eitt herbergi með sameiginlegu baðherbergi.
Austurálma: Er utanaðgeng, þar eru fjögur 2-4ra manna herbergi með sameiginlegu baðherbergi, eldunaraðstöðu og matsal. Þar er einnig utanaðgengt deluxe herbergi með svefnplássi fyrir 3, sérbaðherbergi og eldunaraðstaða.
Gistiskáli: Er suðaustan við hótelið, þar eru tvö 5ra manna gistirými, bæði með sérbaðherbergjum.

Hér er um einstakt tækifæri að ræða sem vert er að skoða.

Nánari upplýsingar í síma 571-9992 eða fsfasteignir@fsfasteignir.is

Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. FS fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
 
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

FS fasteignir ehf. - Glerárgata 36, 3. hæð - 571-9992 - www.fsfasteignir.is
Friðrik Sigþórsson, löggiltur fasteignasali, s: 694-4220, fridrik@fsfasteignir.is
Svala Jónsdóttir, löggiltur fasteignasali, s: 663-5260, svala@fsfasteignir.is
Sigurpáll Gunnarsson, nemi til löggildingar fasteignasala, s: 618-6126, sigurpall@fsfasteignir.is

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá verðmat og ráðgjöf.
Fylgstu með nýjustu eignunum til sölu hjá okkur á facebook og instagram.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
15/05/2017102.700.000 kr.149.000.000 kr.1269.7 m2117.350 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2018
44.8 m2
Fasteignanúmer
2155203
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
5.930.000 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
5.930.000 kr.
Brunabótamat
23.050.000 kr.
FS fasteignir ehf
fsfasteignir

Myndir (56)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Iðndalur 10
Skoða eignina Iðndalur 10
Iðndalur 10
190 Vogar
803 m2
Atvinnuhúsn.
224
361 þ.kr./m2
290.000.000 kr.
Skoða eignina Bæjarhraun Til Leigu 20
Bæjarhraun Til Leigu 20
220 Hafnarfjörður
267,5 m2
Atvinnuhúsn.
Fasteignamat 132.500.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Vesturbraut 6
Skoða eignina Vesturbraut 6
Vesturbraut 6
370 Búðardalur
70,8 m2
Atvinnuhúsn.
239 þ.kr./m2
16.900.000 kr.
Skoða eignina Iðavellir 11
Skoða eignina Iðavellir 11
Iðavellir 11
230 Reykjanesbær
122,1 m2
Atvinnuhúsn.
3
374 þ.kr./m2
45.700.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin