Valhöll kynnir mikið endurnýjaða og vel skipulagða 4ra herbergja íbúð á fyrstu hæð (upp einn stigapall) með suðursvölum í hjarta miðborgarinnar. Þrjú svefnherbergi. Nýleg eldhúsinnrétting og forstofuskápur frá HTH. Sex íbúðir í stigaganginum.
Íbúðin er skráð 115,8 fm og geymslan 7,5 fm, samtals 123,3 fm.
Íbúð staðsett á rólegum stað. Stutt göngufæri í verslun, kaffihús, veitingarstaði og menningu miðborgarinnar.
Bókið skoðun:
Elín Alfreðsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-3090 eða í tölvupósti á netfanginu elina@valholl.is
Nánari lýsing:
Forstofa: flísar á gólfi og nýlegur fataskápur.
Baðherbergi: flísar í hólf og gólf, innrétting, walk-in sturtuklefi.
Eldhús: stórt og rúmgott. L-laga innrétting frá HTH með neðri skápum og efri að hluta auk I-laga innréttingar með skápum sem ná upp í loft. Bakarofn í góðri vinnuhæð. Innbyggð uppþvottavél og ísskápur. Harðarket á gólfi. möguleiki er á að tengja þvottavél í eldhúsi.
Stofa: björt með útgengt á suðursvalir. Harðarket á gólfi.
Hjónaherbergi: innaf stofu. Falleg glerhurð, sérsmíðuð og sett upp af Títan stálsmiðju. Opið fatahengi ásamt skúffueiningum (fylfgir ekki) og harðparket á gólfi.
Lokaður svefnherbergjagangur með tveimur svefnherbergjum.
Herbergi 1: harðparket á gólfi og góður upprunalegur fataskjápur.
Herbergi 2: harðparket á gólfi.
Þvottahús: er sameiginlegt í kjallara hússins þar sem hver er með sínar vélar.
Geymsla íbúðar er í kjallara.
Geymsla innaf þvottahúsi er sameiginleg og þar er hver íbúð með sitt pláss í hillum.
Hjóla- og vagnageymsla: sameiginleg í kjallara.
Húsgjöld eru nú kr.35.000.- á mánuði.
Endurbætur síðustu ára:
Ný eldhúsinnrétting sett upp í desember 2025 og tæki endurnýjuð á sama tíma. Innbyggður kæiskápur, uppþvottavél, ofn, helluborð og háfur.
Nýtt harðparket lagt árið 2022
Baðherbergi endurnýjað árið 2016.
Dregið nýtt rafmagn í eldhús í lok árs 2025.
Skipt um alla glugga og gler í íbúðinni nema í hjónaherbergi innaf stofu, árið 2024. Ný svalahurð árið 2024 og gluggar annara íbúða í húsinu endurnýjaðir eftir þörfum.
Húsið viðgert og málað árið 2021.
Þakjárn og pappi endurnýjað árið 2021.
Frekari upplýsingar veitir:
Elín Alfreðsdóttir fasteignasali í síma 899-3090 eða í tölvupósti á netfanginu elina@valholl.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti,