BYR fasteignasala kynnir í einkasölu HÁAFELL 4 - ÍBÚÐ 202, 700 Egilsstaðir. Fjögurra herbergja íbúð á efri hæð með bílskúr í þríbýlishúsi í Fellabæ. Góð staðsetning, stutt í alla almenna þjónustu, grunnskóli og leikskóli í göngufæri. Smellið hér fyrir staðsetningu.Húsið er byggt árið 1984, eignin skiptist í íbúð 93.4 m² og bílskúr 36.4 m² samtals 129.8 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Anddyri, stofa, eldhús, þrjú herbergi, hol, baðherbergi og þvottahús. Bílskúr og geymsla.
Nánari lýsing: Anddyri með fatahengi, flísar á gólfi, innangengt er í þvottahús frá anddyri.
Eldhús, U-laga innrétting og borðkrókur, helluborð, vifta, ofn í vinnuhæð, gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu (fylgir ekki).
Stofa, parket á gólfi, frá stofu er útgengt út á svalir.
Herbergi I, hjónaherbergi, parket á gólfi fjórfaldur fataskápur.
Herbergi II, parket á gólfi, tvöfaldur fataskápur.
Herbergi III, parket á gólfi.
Baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, vaskinnrétting og skápar, salerni og sturtuklefi.
Hol, parket á gólfi, lúga er úr holi upp á loft.
Þvottahús, innrétting með pláss fyrir tvær vélar í vinnuhæð, flísar á gólfi, gluggi.
Bílskúr og geymsla, gönguhurð er á bílskúrshurð, málað gólf, rafmagn, heitt og kalt vatn, gluggar eru á hlið.
Gert er ráð fyrir þriggja-fasa tengli í rafmagnstöflu í bílskúr (ekki komið inn).
HÁAFELL 4 er þríbýlishús, jarðhæð er steinsteypt, á jarðhæð er ein íbúð og tvær bílageymslur, efri hæð er byggð úr timbri þar eru tvær íbúðir
. Neðri hæð er máluð, efri hæð er klædd með timbri, timburgluggar og hurðar, bárujárn er á þaki, steyptur stigi liggur upp á efri hæð. Bílastæði fylgir eigninni framan við bílskúr, möl í bílastæði. Á lóð eru afmarkaðir þrír sérafnotahlutar, einn fyrir hverja íbúð. Á lóð eru 6 bílastæði 2 fyrir hverja íbúð. Undir útistiga er steypt plata. Búið er að steypta vegg á lóðamörkum, steypt sorptunnuskýli er fremst við bílastæði. Verið er að mála húsið allt að utan og er því skilað fullmáluðu að utan.
Lóðin er 1.080,0 m² leigulóð í eigu Múlaþings.
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 217-3507. Háafell 4C, MúlaþingStærð: Íbúð 93.4 m². 36.4 m². Samtals 129.8 m².
Brunabótamat: 61.100.000 kr.
Fasteignamat .45.650.000 kr. Fyrirhugað fasteignamat 2027 49.700.000 kr.
Byggingarár: 1984
Byggingarefni: Steypt-timbur
Eignarhald: 01.2- Séreign.
Rými: 01.0103, Bílskúr 36.4 Brúttó m². 01.0202, íbúð á hæð 93.4 Brúttó m².
Íbúðarhúsalóð:1.080,0 m². Landeignanúmer: 157055.