Föstudagur 13. mars
Fasteignaleitin
Opið hús:18. mars kl 17:00-17:30
Skráð 13. mars 2026

Búland 1

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
224.7 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
180.000.000 kr.
Fermetraverð
801.068 kr./m2
Fasteignamat
158.900.000 kr.
Brunabótamat
111.900.000 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílskúr
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2036856
Landnúmer
108758
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta
Raflagnir
Endurnýjað að hluta
Frárennslislagnir
Myndað 2017
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Málað 2018
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Gólfhiti og ofnakerfi
Inngangur
Margir inngangar
Nýtt á skrá! Búland 1 Fossvogi Reykjavík

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynna glæsilegt og vel staðsett 5-6 herbergja endaraðhús með bílskúr á fjölskylduvænum stað við Búland 1 í Reykjavík. Húsið er alls 224,7 fermetrar að stærð og þar af 24,9 fermetra bílskúr. Húsið er afar sjarmerandi með mikilli lofthæð yfir setustofu, stórum gluggum til suðurs og fallegum arni. Búið er að endurnýja eldhús, þvottaherbergi og baðherbergi og koma fyrir gólfhita í þeim rýmum. Lóðin er falleg og gróin með viðarverönd til suðurs sem er afgirt að hluta.

Komið er inn í forstofu með gólfhita og er gestasnyrting staðsett við forstofu. Á aðalhæð er fallegt eldhús sem hefur verið endurnýjað með sérsmíðuðum innréttingum og graníti á borðum. Eldhús er staðsett við hlið borðstofu. Á efri palli er stór setustofa með aukinni lofthæð, stórum gluggum til suðurs (gólfsíðum að hluta), fallegum arni og útgengi á rúmgóðar suðursvalir sem snúa inn í bakgarð hússins.


Gengið er niður fallegan stiga frá aðalhæð niður á neðri hæð hússins. Þaðan er útgengi í bakgarð hússins. Húsið er teiknað með fjórum svefnherbergjum en búið er að opna á milli tveggja herbergja (möguleiki að breyta til baka). Baðherbergi er staðsett á neðri hæð sem var arkitektateiknað og endurnýjað líkt og eldhús hússins. Gott vinnurými er í holi, þvottaherbergi sem hefur sömuleiðis verið endurnýjað og góð geymsla inn af þvottaherbergi. Útgengi er úr þvottaherbergi á framanverða lóð og þar er innangengt í kalda geymslu.

Eignin hefur fengið gott viðhald í gegnum árin að utan sem innan. Má þar m.a. nefna að öll hús í raðhúsalengjunni voru múrviðgerð og máluð árið 2018 ásamt því að þök húsana voru máluð sama ár. Árið 2023 var niðurfall á svölum endurnýjað ásamt flísum á svalagólfi. Árið 2022 voru bílskúrar klæddir og nýju handriði komið fyrir við bílskúra. Eldhús, forstofa og gestasnyrting var endurnýjað árið 2005 ásamt vatns- og raflögnum í þeim rýmum. Tveimur árum seinna (2007) var baðherbergi og þvottaherbergi endurnýjað ásamt vatns- og raflögnum. Nánari viðhaldssaga fæst hjá fasteignasala.

Staðsetning eignarinnar er afar góð á eftirsóknarverðum stað við Fossvogsdalinn í Reykjavík. Fallegar hjóla- og gönguleiðir í næsta nágrenni sem liggja um Fossvogsdalinn, inn í Elliðaárdalinn, Nauthólsvík og víðar.

Nánari lýsing:
Efri hæð:
Forstofa: Með flísum á gólfi og gólfhita.
Gestasnyrting: Með flísum á gólfi, gólfhita, innréttingu við vask, upphengt salerni og glugga.
Borðstofa: Með parketi á gólfi og aukinni lofthæð.
Eldhús: Með flísum á gólfi og gólfhita. Fallegar sérsmíðaðar innréttingar frá Við og við með graníti á borðum. Gott skápa- og borðpláss. Tvöfaldur Samsung kæliskápur, Siemens bakaraofn og Siemens örbylgjuofn. Siemens spanhelluborð og tengi fyrir uppþvottavél. Góð birta skilar sér um stóra gluggahlið til norðurs.
Setustofa: Er staðsett á efri palli efri hæðar. Stór með parketi á gólfi og mikilli lofthæð. Stórir gluggar til suðurs inn í bakgarð hússins og afar fallegur arinn fyrir miðri setustofu. 

Neðri hæð: Gengið niður fallegan stiga frá efri hæð. Þaðan er gangur að hurð út í bakgarð hússins.
Hol: Nýtist sem gott vinnurými með parketi á gólfi.
Svefnherbergi I: Er rúmgott, með parketi á gólfi og gluggum til suðurs. Voru áður tvö barnaherbergi og möguleiki er að breyta því til baka eins og upphaflegar teikningar gera ráð fyrir.
Svefnherbergi II: Er rúmgott, með parketi á gólfi og gluggum til suðurs. Inn af herbergi er fataherbergi.
Fataherbergi: Er staðsett inn af svefnherbergi II. Parket á gólfi og innréttingar beggja vegna. Rennihurð til þess að loka fataherbergi af.
Baðherbergi: Var endurnýjað á fallegan og vandaðan máta. Flísar á gólfi og veggjum ásamt gólfhita. Sérsmíðaðar innréttingar frá Við og við. Baðkar með innbyggðum sturtutækjum, flísalögð sturta með innbyggðum sturtutækjum og glerþili, upphengt salerni og handklæðaofn.
Svefnherbergi III: Er stórt, með parketi á gólfi og skápum á heilan vegg. Gluggar til norðurs.
Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi, góðri innréttingu með steini á borðum, tenglum fyrir þvottavél og þurrkara og útgengi á framlóð hússins.
Geymsla I: Er staðsett inn af þvottaherbergi með hillum.
Geymsla II: Er köld og staðsett við hlið inngangshurðar inn í þvottaherbergi.

Bílskúr: Er 24,9 fermetrar, afar snyrtilegur og með máluðu gólfi. Bílskúr er upphitaður með heitu/köldu vatni. Rafhleðslustöð er uppsett við bílskúr.

Nánari upplýsingar:
Heimir Hallgrímsson, lögg. fasteignasali / heimir@fastlind.is / 849-0672
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1972
24.9 m2
Fasteignanúmer
2036856
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
10.150.000 kr.

Myndir (51)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vanabyggð 2b
Skoða eignina Vanabyggð 2b
Vanabyggð 2b
600 Akureyri
166.8 m2
Raðhús
514
503 þ.kr./m2
83.900.000 kr.
Skoða eignina Laugartún 6b
Opið hús:18. mars kl 16:15-17:00
Skoða eignina Laugartún 6b
Laugartún 6b
606 Akureyri
89.2 m2
Raðhús
312
577 þ.kr./m2
51.500.000 kr.
Skoða eignina Orkureitur D2-801 Grensásvegur 4
Opið hús:15. mars kl 13:00-13:30
Orkureitur D2-801 Grensásvegur 4
108 Reykjavík
152.5 m2
Fjölbýlishús
221
1305 þ.kr./m2
199.000.000 kr.
Skoða eignina Orkureitur D2-601 Grensásvegur 4
Opið hús:15. mars kl 13:00-13:30
Orkureitur D2-601 Grensásvegur 4
108 Reykjavík
99 m2
Fjölbýlishús
312
1181 þ.kr./m2
116.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin